Öskugos og flug - Ráðstefna um eldgosið í Eyjafjallajökli - Tilkynning frá Keili

Þegar Eyjafjallajökull byrjaði að gjósa í apríl 2010 hafði askan frá gosinu gífurlega áhrif á flugumferð í Evrópu.

  • Áætlað er að flugfélögin hafi tapað 23 milljörðum króna á degi hverjum.
  • Í Evrópu var 16.000 flugferðum aflýst þann 16. apríl og jafnmörgum þann 17. apríl 2010.
  • Þann 21. apríl hafði 95.000 flugferðum verið aflýst vegna gossins.
  • Lokun flugsvæða skildi um fimm milljónir manna eftir sem strandaglópa.
  • Áhrif gossins voru víðtækari en áhrif sprengjuárásanna þann 11. september.
  • Framleiðsla á ýmsum sviðum, t.d. í bílaiðnaði, raskaðist þar sem ekki var hægt að fljúga með hluti til framleiðslunnar.

Flugakademía Keilis hefur af þessu tilefni, í samstarfi við Forseta Íslands, hr. Ólaf Ragnar Grímsson, hr. Kristján L. Möller, samgönguráðherra, ICAO, IATA, ATA, AEA, Inspired by Iceland, Icelandair, Bandaríska Sendiráðinu og Sendiráð Rússneska Sambandsríkisins boðað saman leiðtoga, sérfræðinga og embættismenn, bæði innan Evrópu sem að utan, til að ræða hvað hefði mátt fara betur og til hvaða aðgerða þarf að grípa. Þetta er tækifæri fyrir evrópska hagsmunaaðila að ræða við og bera saman vinnuferli við samstarfsmenn frá Bandaríkjunum og Asíu. Ráðstefnan um áhrif Eyjafjallajökuls á flug mun fara fram í Ásbrú dagana 15.-16.september.

    Á ráðstefnunni verður leitast við að svara spurningum eins og:
  • Hvað gerðist í Eyjafjallajökli?
  • Af hverju lokaðist lofthelgi Evrópu?
  • Hvaða reglum var fylgt?
  • Hvaða lærdóm má draga af þessum vanda?
  • Er hægt að draga úr áhrifum öskufalls á flugumferð?
  • Hverjir þurfa að taka hvaða skref til þess að minnka áhrif öskufalls á flugumferð og öryggi?

Fyrirlesarar koma frá flugumferðarstjórnum víðsvegar úr Evrópu, Bandaríkjunum, Rússlandi og Kína, the European Commission, ICAO, IATA, AEA, ATA, FAA, EASA, EUROCONTROL, CANSO, OECD, UNWTO, flugfélögum, flugvöllum og framleiðendum eins og AIRBUS, BOEING, Rolls Royce, CFM/SNECMA, jarðvísindastofnunum og VAAC ásamt fulltrúum frá rannsóknarstofnunum sem sérhæfa sig í flugheiminum. Ásamt hagsmunaaðilum flugiðnaðarins munu vísindamenn frá Háskóla Íslands, USGS, NASA, NILU og DRL ræða eldgos og möguleika á að greina öskuský og dreifingu þeirra í loftinu. Skráning og nánari upplýsingar er hægt að finna á:
http://en.keilir.net/keilir/conferences/eyjafjallajokull
Keilir Aviation Academy – Conference Secretariat:
Email: conferences@keilir.net
Phone: +354 664 0160

meira

Eftirlit Flugmálastjórnar Íslands með loftflutningum um verlsunarmannahelgina 2010

Flugmálastjórn Íslands mun sinna hefðbundnu eftirliti með loftflutningum um verslunarmannahelgina.  Markmið er að flug gangi snurðulaust fyrir sig og að fyllsta öryggis sé gætt. Fylgst er með því að eftir öllum reglum sé farið í hvívetna til að forða flugatvikum og slysum og tryggja samkeppnisaðstöðu aðila.

Sérstaklega verður fylgst með starfsemi loftfara í tengslum við Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.  Áhersla verður lögð á að flugmenn tryggi að loftför séu starfrækt innan þyngdartakmarkana og að útbúnaður loftfara sé samkvæmt gildandi reglugerðum auk flug- og hvíldartíma flugmanna.   Þá verður fylgst með leyfisskyldri starfsemi sem varðar fólksflutninga í flugi en eitthvað hefur borið á að einkaflugmenn hafi stundað slíka starfsemi í tengslum við t.d. Þjóðhátíð og eldsumbrotin í Eyjafjallajökli án heimildar.

Skv. upplýsingum Flugmálastjórnar munu einkum Flugfélag Íslands, Mýflug og Norðurflug sinna fólksflutningum milli lands og Eyja en þau hafa öll leyfi til fólksflutninga ásamt fleirum, sjá nánar á heimasíðu Flugmálastjórnar http://www.caa.is/Flugrekendur/Handhafarflugrekstrarleyfa/
 
Flugmálastjórn vill beina því til almennings að fljúga eingöngu með þeim aðilum sem hafa tilskilin leyfi. meira

Ráðstefna um Eyjafjallajökul og flugið

Flugakademía Keilis heldur í haust ráðstefnu í samvinnu við ýmsa aðila þar sem fjalla á um eldgosið í Eyjafjallajökli og áhrif öskufalls á flugrekstur.

Til ráðstefnunnar hefur verið boðið vísindamönnum, forráðamönnum í flugrekstri og fulltrúum opinberra aðila.

Ráðstefnan verður haldin dagana 15. og 16. september á gamla varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll sem nú heitir Ásbrú.

Á ráðstefnunni verður leitast við að svara spurningum eins og hvað gerðist í Eyjafjallajökli, af hverju lokaðist lofthelgi Evrópu, hvaða reglum var fylgt og hvaða lærdóm má draga af þessum vanda. Einnig verður fjallað um hvort og hvernig má draga úr umfangi áhrifa öskudreifingar á flugumferð og hverjir eigi að taka ákvarðanir um hvernig minnka má áhættu vegna hennar. 

Fyrirlesarar eru flestir úr röðum ofangreindra stofnana og samtaka og er um þessar mundir verið að ganga frá endanlegri dagskrá. Eric Moody, fyrrverandi flugstjóri hjá British Airways, tekur þátt í ráðstefnunni en hann var við stjórnvölin þegar breiðþota hans lenti í öskufalli við Jövu 24. júní 1982 en þá drapst á öllum fjórum hreyflum þotunnar. Flugmönnum tókst að koma þeim í gang á ný og lenti vélin heilu og höldnu. Mun flugstjórinn skýra frá reynslu sinni í þessu flugi. Þá hafa nokkrir af fremstu vísindamönnum heims á sviði eldfjallafræða og öskudreifingar staðfest þáttöku sína. 

Helstu innlendu samstarfsaðilar Keilis um skipulag ráðstefnunnar eru samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, iðnaðarráðuneytið, utanríkisráðuneytið, Flugmálastjórn Íslands, flugfélögin Atlanta, Icelandair og Flugfélag Íslands, Veðurstofa Íslands, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Félag íslenskra atvinnuflugmanna svo og Verkfræðingafélag Íslands og Tæknifræðingafélag Ísands. Þá hefur verið leitað samstarfs við ýmsa erlenda aðila svo sem samtök flugfélaga, flugmannafélaga, evrópskra og alþjóðlegra stofnana á sviði flugsins og vísindastofnana. 

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, er verndari ráðstefnunar.

Nánari upplýsingar um ráðstefnunna er að fá að vefsíðu Keilis:  http://en.keilir.net/keilir/conferences/eyjafjallajokull

Fréttatilkynning frá Keili

meira

Sex nýir loftferðasamingar undirritaðir

Jóhanna Helga Halldórsdóttir, Kristján Andri Stefánsson, Alvaro Lisboa Montt frá Chile og Karl AlvarssonSex nýir loftferðasamningar voru áritaðir fyrir Íslands hönd á ráðstefnu Alþjóðaflugmála-stofnunarinnar um loftferðasamninga, ICAN 2010, sem fram fór í Montego Bay um mánaðamótin. Samningarnir eru við Armeníu, Barbados, Brasilíu, Chile, Jamaíku og Kólumbíu. Jafnframt var undirrituð viljayfirlýsing um gerð loftferðasamnings við Panama.

Markmið ráðstefnunnar var að skapa aðildarríkjum stofnunarinnar vettvang til viðræðna um gerð tvíhliða loftferðasamninga. Fyrir íslensku samninganefndinni fór Kristján Andri Stefánsson sendiherra en ásamt honum tóku þátt í viðræðunum Karl Alvarsson, skrifstofustjóri í samgönguráðuneytinu, og Jóhanna Helga Halldórsdóttir, lögfræðingur hjá Flugmálastjórn. Sendinefndin hitti fulltrúa fjölmargra ríkja annarra en þeirra, sem áritaðir voru samningar og viljayfirlýsing við, en meðal þeirra ríkja sem haldnir voru formlegir fundir með voru Kanada, Suður-Kórea og Trinidad og Tobago.

Markmið samninganefndar Íslands í öllum tvíhliða viðræðum um loftferðasamninga er að tryggja flugrekendum eins mikið frelsi til að veita þjónustu milli samningsríkja, eins og hægt er. Tvíhliða samningar sem þessir snúast fyrst og fremst um gagnkvæmar heimildir til áætlunarflugs en um leið hefur verið leitað eftir samningum sem heimila óreglubundið flug auk farmflutninga. Í flestum samninganna hefur náðst verulegur árangur í þessa átt sem skapar ný tækifæri fyrir íslenska flugrekendur til áætlunarflugs eða óreglubundins flugs með farþega og vörur.

meira

Isavia fær starfsleyfi

tv. Pétur K. Maac flugmálastjóri og Björn Óli Hauksson th. við starfleyfisafhendingunaIsavia ohf. hóf rekstur 1. maí s.l. með sameiningu Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf. Bæði þessi félög höfðu starfsleyfi til rekstur flugleiðsöguþjónustu frá Flugmálastjórn Íslands og auk þess til reksturs flugvalla í flokki 1 til 3. Reglur kveða á um að ekki megi framselja slíkar heimildir og lagði hið nýstofnaða félag inn umsókn til Flugmálastjórnar Íslands um rekstur flugleiðsöguþjónustu, flugvallarekstur sem og umsókn um samþykki vegna flugverndar. Starfsleyfin voru gefin út 30. apríl og þann 4. maí afhenti Pétur K. Maack flugmálastjóri Birni Óla Haukssyni starfsleyfin við hátíðlega athöfn. Starfsleyfin gilda til 31. janúar 2011.
Flugmálastjórn Íslands óskar hinu nýstofnaða félagi - Isavia til hamingju og óskar starfsmönnum þess velfarnaðar í starfi. meira

Requirements for acceptance of operations in Volcanic Ash Zone 2

    Applicability
  • All Icelandic operators with EU-OPS AOC with turbine powered aeroplanes and JAR-OPS 3 AOC with turbine powered helicopters.
  • All Icelandic registered turbine powered aeroplanes and helicopters.
  • - This procedure is not applicable for Icelandic Coast Guard when operating in accordance with “Lög um Landhelgisgæslu Íslands nr. 52/2006”.

    Effective date
  • From 24. April 2010 when Volcanic Ash Zone 2 has been specified in NOTAM.



Read all reguirements meira

Starfræksla loftfara á svæðum sem eru hugsanlega menguð af gjósku

Flugmálastjórn Íslands vill koma á framfæri eftirfarandi upplýsingum vegna starfrækslu loftfara á svæðum sem eru hugsanlega menguð af gjósku vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.


NAT viðbúnaðaráætlun

Á Íslandi var unnið fram til 23. apríl samkvæmt NAT viðbúnaðaráætlun vegna gjósku (Volcanic Ash Contingency plan for the North Atlantic Region) en sú áætlun gilti fyrir íslenska flugupplýsingasvæðið og þar með lofthelgi Íslands. Flugstoðir annast framkvæmd þessarar áætlunar á Íslandi í samvinnu við m.a. FMS, Veðurstofuna, Volcanic Ash Advisory Centre í London (VAAC), Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO) og Eurocontrol (CFMU).

    Ríki Evrópu byggja viðbúnað vegna gjósku á sambærilegri viðbúnaðaráætlun, EUR-DOC 019, en að auki hafa flugmálayfirvöld í Evrópu skilgreint þrenns konar svæði, byggt á magni af gjósku í hverjusvæði fyrir sig. Svæði þessi eru skilgreind m.v. spár og aðrar tiltækar upplýsingar hverju sinni og eru þrenns konar:
  • Zone 1: Limited No-Fly Zone: Area of High Density Volcanic Ash Contamination.
    Hér er alþjóðaflug bannað.
  • Zone 2: Potential Contamination Zone: Area of Low Density Volcanic Ash Contamination.
    Flug á þessu svæði er háð samþykki flugmálayfirvalda og gerð er krafa um að flugrekendur framkvæmi áhættumat.
  • Zone 3: Non-Contaminated Airspace: Area Free of Volcanic Ash Contamination.
    Í þessum svæðum eru engar takmarkanir.

Frá og með 24. apríl 2010 hefur Flugmálastjórn Íslands veitt Flugstoðum heimild til þess að starfa skv. sambærilegum áætlunum sem eru í gildi á meginlandi Evrópu sem felast m.a. í að hægt er að gefa út blindflugsheimildir til flugrekenda með ákveðnum skilyrðum.

Heimildin er bundin við innanlandssvæði Íslands.

Sjá nánar bréf sent til flugrekstrarstjóra 23. apríl 2010.

Kröfur til starfrækslu loftfars á ASH ZONE 2 / Requirements for acceptance of operations in Volcanic Ash Zone 2

meira

Ábending vegna flugs í nágrenni Eyjafjallajökuls

Gefið hefur verið út NOTAM með ábendingu til flugmanna vegna flugs í nágrenni við Eyjafjallajökul þar sem flugmönnum sem hyggjast fljúga í nágrenni við eldstöðina í Eyjafjallajökli er bent á að fara gætilega vegna mögulegra sprenginga í gosstöðinni.  Einnig er möguleiki á gufusprengingum frá hraunstraumnum. Búast má við ókyrrð í nágrenni við eldstöðina og yfir nýja hrauninu.   Þá er búist við að mikil flugumferð verði í nágrenni eldstöðvarinnar er flugmönnum bent á að sýna aðgát, tilkynna sig og halda hlustvörð á 118.1 Mhz og fylgjast vel með annarri umferð.
Að lokum er flugmönnum er bent á að virða reglur um lágmarkshæðir.

Sjá NOTAM meira

Flugmálastjórn Íslands óskar eftir að ráða eftirlitsmann í flugvalla- og flugverndardeild

Starfið felst einkum í úttektum og eftirliti með flugvöllum.

Menntunar- og hæfnikröfur
Krafist er menntunar samsvarandi stúdentsprófi og flugþekkingar eða minnst fimm ára reynslu af störfum á flugvelli eða flugtengdri starfsemi. Þekking á gæðakerfum eða reynsla á því sviði er nauðsynleg.  Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á öryggisstjórnunarkerfum (SMS) og úttektum.  Viðkomandi þarf að hafa góð tök á íslensku og ensku. 
Við leitum að starfsmanni sem hefur góða samskiptahæfileika, örugga og þægilega framkomu og mikinn áhuga á flugstarfsemi. Hann þarf að geta sýnt af sér frumkvæði í starfi, vera skipulagður í verkum sínum og unnið undir miklu álagi. Launakjör taka mið af viðeigandi kjarasamningum opinberra starfsmanna.

Í boði er áhugavert starf hjá Flugmálastjórn þar sem hæfileikar og frumkvæði fá notið sín. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði. Flugmálastjórn áskilur sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar um starfið gefa Ágústa R. Jónsdóttir deildarstjóri í flugvalla- og flugverndardeild (sími 569 4181 / agusta@caa.is) og Reynir Sigurðsson framkvæmdastjóri flugleiðsögu- og flugvallasviðs (sími 569 4345 /reynir@caa.is)

Vinsamlegast sendið umsóknir til Flugmálastjórnar Íslands, Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík fyrir 3. maí n.k. merktar:
„Flugmálastjórn – umsókn um starf eftirlitsmanns“

Flugmálastjórn Íslands er ríkisstofnun með u.þ.b. 40 starfsmenn. Hlutverk Flugmálastjórnar er að fara með stjórnsýslu á sviði flugmála innanlands og á alþjóðavettvangi, hafa eftirlit með hvers konar flugstarfsemi á vegum íslenskra aðila til að tryggja öryggi í flugi innanlands og utan. Flugmálastjórn leggur áherslu á jafnan rétt kvenna og karla til starfa.

meira

Volcanic Eruptions and Aviation – Ash air emergencies

Due to volcanic eruption in Eyjafjallajökull, located in the south of Iceland,  the atmosphere is contaminated with ash emanating from the volcano. Depending on the wind and distribution of the ash cloud the ATS provider will not issue IFR clearance in the area of contamination in order to ensure flight safety which means that there will be no flight in a large area. The development of distribution is monitored by VAAC – Volcanic Ash Advisory Center in London and the Icelandic MET Office. The Icelandic Civil Aviation Administration monitors the situation through them
Keflavík Airport is due to be open until further information regarding weather forecast is to be issued.
For further information on flight schedules and weather please visit
Keflavik Airport
Isavia
Icelandic MET Office
Icelandair
Iceland Express

meira

Réttindi flugfarþega sem lenda í seinkunum eða aflýsingum á flugi vegna eldgossins

Áhrif eldgossins á flugumferð veldur því að margir flugfarþegar komast ekki til áfangastaðar síns á réttum tíma eða jafnvel alls ekki.  Um réttindi flugfarþega er fjallað um í reglugerð (EB) nr. 261/2004, um sameiginlegar reglur um skaðabætur og aðstoð til handa farþegum sem er neitað um far og þegar flugi er aflýst eða mikil seinkun verður, sem innleidd var í íslenskan rétt með reglugerð nr. 574/2005. Flugmálastjórn Íslands sér um að framfylgja reglugerðinni.

Um réttindi flugfarþega er fjallað um í reglugerð (EB) nr. 261/2004, um sameiginlegar reglur um skaðabætur og aðstoð til handa farþegum sem er neitað um far og þegar flugi er aflýst eða mikil seinkun verður, sem innleidd var í íslenskan rétt með reglugerð nr. 574/2005. Þegar vísað er í greinar og töluliði í þessari umfjöllun þá er átt við reglugerð nr. 261/2004.

    Staðan sem farþegi lendir í er annaðhvort sú að flugi hans er aflýst eða því seinkar vegna eldgoss en um þetta er fjallað í 5. og 6. gr. reglugerðarinnar. Um réttindi farþega í þessum tilvikum er nánar mælt fyrir um í 8. og 9. gr. reglugerðarinnar. Í 8. gr. segir að þessum tilvikum skuli farþegi eiga rétt til endurgreiðslu eða fá breytingu á flugleið. Í 9. gr. er tilgreind sú þjónustu sem farþegi á rétt á í þessum tilvikum en hún er eftirfarandi:
  • Farþegum skal boðið eftirfarandi endurgjaldslaust:
    a) máltíðir og hressing í samræmi við lengd tafarinnar,
    b) hótelgisting,
    — ef farþegi neyðist til að bíða eina eða fleiri nætur eftir fari,
    eða
    — ef farþegi neyðist til að bíða lengur en hann gerði ráð fyrir,
    c) flutning á milli flugvallar og gistiaðstöðu (hótel eða annað).
  • Þar að auki skal farþegum boðið að hringja tvö símtöl eða senda skilaboð um fjarrita eða bréfsíma eða með tölvupósti þeim að kostnaðarlausu.
  • Við beitingu þessarar greinar skal flugrekandinn huga sérstaklega að þörfum hreyfihamlaðra og fylgdarmanna þeirra og einnig að þörfum fylgdarlausra barna.
  • Þegar flugi er aflýst eða því er seinkað þá ber flugrekanda eða flytjanda að afhenda farþegum skriflegar upplýsingar um réttindi þeirra skv. reglugerð nr. 261/2004.

Ef farþegar fá ekki framangreinda þjónustu frá flugrekenda eða flytjanda og þurfa að greiða fyrir hana sjálfir þá skulu þeir taka kvittanir fyrir útlögðum kostnaði og krefja flugrekanda eða flytjanda um endurgreiðslu á þeim kostnaði.
Sjá einnig fréttatilkynningu frá framkvæmdastjórn Evrópusambandins

meira

Gossvæðið: Flugstoðir með heimild til að setja upp haftasvæði

Að ósk Landhelgisgæslu Íslands hefur Flugmálastjórn Íslands ákveðið að fela Flugstoðum ohf. að setja upp haftasvæði umhverfis gosstöðvarnar í Eyjafjallajökli.
Flugstoðum er falið að ákveða stærð svæðisins í samráði við Almannavarnir og annast aðgangsheimildir inn í svæðið. meira

Ráðstafanir í loftrými vegna goss í Eyjafjallajökli

Verið er að meta hvort setja eigi haftasvæði í kringum gíginn á gossvæðinu í Eyjafjallajökli.  Búið er að senda út NOTAM (Notice to airman) til flugmanna og flugrekstraraðila.  Sjá NOTAM
meira

Flug yfir gossvæðinu - lágmarksflughæðir og flugrekstrarleyfi

Flugmálastjórn Íslands vill ítreka það fyrir flugmönnum að lágmarksflughæð utan þéttbýlis er 500 fet nema fyrir flugtök og lendingar.  Flugmenn eru beðnir um að virða lágmarkshæðir yfir gossvæðinu við Eyjafjallajökul og gæta ítrustu varkárni sérstaklega í ljósi þess að ókyrrð í lofti yfir og í kringum gossvæði getur verið töluverð.  Þá áréttar Flugmálastjórn að eingöngu þeir sem hafa flugrekstrarleyfi hafa heimild til að selja útsýnisflug.  Krafa er um að flugrekstrarleyfið sé ávallt um borð í loftfarinu og geta farþegar óskað eftir því að sjá það leiki vafi á því að viðkomandi hafi heimild til að fljúga með farþega gegn gjaldi.  Ennfremur er bent á að aðrar tryggingar gilda í einkaflugi en í atvinnuflugi. meira

Björgunar- og slökkviþjónusta á flugvöllum

Kröfur til rekstraraðila flugvalla um björgunar- og slökkviþjónustu á flugvöllum er lýst í reglugerð nr. 464/2007 um flugvelli. Reglugerðin er í samræmi við kröfur Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) sem er að finna í viðauka 14 við svonefndan Chicago sáttmála.

Í grein 9.2 í viðauka 14 er lögð sú skylda á herðar rekstraraðila flugvalla að þeir komi sér upp viðbúnaðarþjónustu ef loftfari hlekkist á  (flugslys / flugatvik) sem á að geta brugðist við samstundis með það markmið að bjarga mannslífum.  Í viðauka 14 er nánar útlistaðar kröfur til flugvalla vegna slíks viðbúnaðar en þær byggja m.a. á stærð loftfara sem um flugvöllinn fara.  Kröfurnar snúa að slökkvimagni, þjálfun starfsmanna til að slökkva eld í loftfari sem og viðbragðstíma að fjærsta brautarenda á hverjum tíma. 

Reglugerð nr. 464/2007 um flugvelli og viðauki 14 er grundvöllur að starfsleyfi flugvalla. Flugmálastjórn Íslands hefur eftirlit með rekstraraðilum flugvalla, m.a. að þeir uppfylli kröfur um að flugvöllur sé í réttum slökkviflokki miðað við stærð loftfara sem nota flugvöllinn, nægilegt slökkvimagn sé til staðar miðað við slökkviflokk, viðbragðsaðilar hafi hlotið þjálfun til að slökkva elda í loftfari og  viðbragðstíma.

Starfsleyfi flugvalla og eftirlit Flugmálastjórnar Íslands með þeim byggir á því að rekstraraðilar flugvalla uppfylli ákvæði loftferðarlaga nr. 60/1998 um flugvelli, reglugerð nr. 464/2007 um flugvelli og viðauka 14 og þar með uppfylli flugvöllurinn alþjóðlegar kröfur um björgunar- og slökkviþjónustu á flugvöllum.  Rétt er í þessu sambandi að benda á að engin krafa er í þessum alþjóðakröfum um rekstur eiginlegs slökkviliðs eins og þekkist í borgum og bæjum, heldur einungis að sinna fyrstu viðbragðsþjónustu ef loftfari hlekkist á.  meira

Viðhaldsáætlanir fyrir einkaflugvélar - Staðan í mars 2010

Eigendur einkaflugvéla hafa undanfarið unnið að því að tryggja aðlögun að nýju kröfum Flugöryggisstofnunar Evrópu (EASA) um áframhaldandi lofthæfi loftfara, sem hafa tegundarskírteini (TC) sem EASA tekur gilt, sbr. tilkynning Flugmálastjórnar frá sl.ári.

Aðlögunartímabil
Í tilkynningunni er getið um að aðlögunartímabil  er í gildi til 28. september 2011 varðandi EASA lofthæfistaðfestingavottorð (ARC) fyrir loftför í almannaflugi. Þetta gildir um loftför sem voru með lofthæfiskírteini í gildi þann 28. september 2008 og fengu þau endurútgefin ekki síðar en 28. september 2009.

Við næstu endurútgáfu þarf síðan að leggja fram samþykkta viðhaldsáætlun.

Undirbúningur og tímaáætlun
Þessi vinna hefur farið ágætlega af stað og er þegar búið er að samþykkja áætlanir fyrir allmargar flugvélar. Í mörgum tilvikum hafa reyndir flugvirkjar tekið  að sér að útbúa viðhaldsáætlun fyrir flugvélaeigendur og hefur það fyrirkomulag reynst vel.

Á meðfylgjandi mynd er yfirlit um fjölda loftfara sem renna út á þjóðar ARC skv. þessu í lok hvers mánaðar. Mesti kúfurinn er í sumar og því er mikilvægt að viðhaldsáætlanir séu lagðar fram tímanlega með að lágmarki 4 vikna fyrirvara til að tryggja að unnt sé að endurnýja lofthæfistaðfestingarvottorð tímanlega. Vonast Flugmálastjórn til að allir umráðendur einkaflugvéla hafi lagt inn umsóknir fyrir 1. maí n.k. fyrir flugvélar þar sem þjóðar ARC rennur úr gildi í maí, júní, júlí og ágúst. Að öðrum kosti er ekki unnt að tryggja tímanlega afgreiðslu.

Fjöldi ARC útrunnin í lok hvers mánaðar 2010



Frágangur - Kostnaður

Flugmálastjórn tekur fast gjald fyrir samþykki á viðhaldsáætlunum 22.600 kr. Gjaldtökunni er mjög stillt í hóf og miðast við viðhaldsáætlanir séu vel útfærðar áður en þær eru lagðar inn til samþykkis hjá Flugmálastjórn.

Ef um veruleg frávik frá kröfum er að ræða er áætlunum hafnað strax með skýringu áður en formleg yfirferð hefst. Þá er gerður fyrirvari um frekari gjaldtöku skv. tímagjaldi ef yfirferð tefst vegna endurtekinna ófullnægjandi viðbragða eða upplýsinga umráðanda.

Skýringar - leiðbeiningar
Til einföldunar hefur Flugmálastjórn útbúið ramma að viðhaldsáætlun (template).
Þessi aðferðafræði hefur reynst vel en aðrar útfærslur eru einnig heimilar sem gera grein fyrir sömu atriðum á greinargóðan hátt.

Full aðlögun að nýju kröfunum felur í sér að öll lofthæf loftför uppfylli að fullu kröfur um viðvarandi/áframhaldandi lofthæfi eigi síðar en 28. september 2011. það felur m.a. í sér að loffar sé með EASA ARC og samþykkta viðhaldsáætlun.

Þessar nýju kröfur byggjast á kröfum EASA sbr. rg. EC 2042/2003 (íslensk reglugerð nr. 206/2007 sbr. 1047/2007) og gilda um alla Evrópu.

 

Nánari upplýsingar veitir lofthæfideild Flugmálastjórnar Íslands


meira

Traust til Flugmálastjórnar Íslands mælist enn 3,8 stig

Í árlegri viðhorfskönnun Capacent Gallup um traust almennings til Flugmálstjórnar Íslands í samanburði við tólf aðrar stofnanir og þróun þar á mælist Flugmálastjórn Íslands með traust almennings upp á 3,8 stig af 5 mögulegum.
Flugmálastjórn heldur þriðja sæti í samanburði við aðrar stofnanir á eftir Háskóla Íslands sem mælist með 4,0 stig og lögreglunni sem mælist með 4,1 stig.
61,0% ber mikið traust til Flugmálastjórnar Íslands en 5,5% bera lítið traust til stofnunarinnar.
Viðhorfskönnunin var framkvæmd 17. til 26. febrúar 2010 með netkönnun og var úrtakið 1712 manns 18 ára og eldri af öllu landinu, handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.  Svarhlutfall var 70,9%

    

meira

Kröfur til tegundaráritunar loftfars í Part 66 skírteini

Þeir sem ætla að sækja um tegundaráritun í Part 66 skírteini þurfa frá 1. apríl 2010 að sækja um samþykki á verklegum þætti námsins til Flugmálastjórnar Íslands áður en námið hefst.

Kröfur sem gerðar eru til tegundaráritunar eru að finna í viðauka III (66. hluti) í fylgiskjali I við reglugerð nr. 206/2007 um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði. Þessar kröfur eru einnig að finna á heimasíðu Flugöryggisstofnunar Evrópu þ.e. European Aviation Safety Agency (EASA). Flugmálastjórn Íslands vill benda á að nauðsynlegt er að lesa „acceptable means of compliance (AMC)” og “guidance material (GM)“ samhliða „implementing rules“ til að ná góðum skilning á þeim kröfum sem eru gerðar til tegundaráritunar í Part 66 skírteini.

Athygli er vakin á því að hér er eingöngu verið að fjalla um flugvélar og þyrlur þar sem tegundar námskeið er krafa áður en flugvirki getur sótt um áritun fyrir viðkomandi flugvél í Part 66 skírteini sitt, flugvélar eins og t.d. Boeing, Airbus, Dash, Eurocopter SA332 og Cessna 500 en ekki litlar einkavélar.

Sjá frekari upplýsingar

meira

Tilkynning um lengri afgreiðslutíma umsókna hjá stofnuninni

Vegna takmörkunar á yfirvinnu starfsmanna Flugmálastjórnar Íslands mega viðskiptavinir stofnunarinnar búast við því að frá og með 1. febrúar 2010 verði sá afgreiðslutími sem líður frá því að tekið er við umsóknum um nýjar heimildir eða leyfi eða breytingar á núverandi heimildum eða leyfum mun lengri en áður.  Þetta á sérstaklega við í þeim tilvikum sem um er að ræða sérfræðivinnu varðandi lofthæfi og flugrekstur.
Í ljósi þessa vill Flugmálastjórn hvetja viðskiptavini sína til að koma tímanlega með umsóknir og ganga úr skugga um að öll nauðsynleg skjöl fylgi með.  Stofnunin mun leitast við að tilkynna, innan 10 daga frá móttöku gagna, hvenær vænta megi afgreiðslu á umsókninni. 
Ennfremur er ljóst vegna takmörkunar á yfirvinnu að ekki verður unnt að hafa samband við sérfræðinga og eftirlitsmenn stofnunarinnar utan venjulegs dagvinnutíma í sama mæli og  verið hefur.
Ef upp koma sérstakar og/eða brýnar aðstæður í flugrekstri sem kalla á á hraðari afgreiðslu umsókna geta viðskiptavinir lagt inn slíka beiðni til deildarstjóra eða framkvæmdastjóra flugöryggissviðs. Í þeim tilvikum verður metið hvort unnt sé að verða við slíkri beiðni án þess að það komi niður á afgreiðslu annarra verkefna. En um leið skal tekið fram að ef slík flýtimeðferð hefur aukakostnað í för með sér munu viðskiptavinir bera þann kostnað.
Flugmálastjórn gerir ekki ráð fyrir að takmörkun á yfirvinnu starfsmanna hafi áhrif á afgreiðslu skírteina einstaklinga annarra en Part66 skírteina.

Pétur K. Maack
Flugmálastjóri

meira

Nýir loftferðasamningar

Ísland hefur gerst aðili að loftferðasamningi Evrópusambandsins og Bandaríkjanna sem skrifað var undir í apríl 2007 og tók gildi vorið 2008. Samningurinn veitir íslenskum flugrekendum sama rétt og flugrekendum í aðildarríkum Evrópusambandsins til farþega- og fraktflugs milli Evrópu og Bandaríkjanna. Er þeim heimilt að fljúga milli hvaða borga sem er í Evrópu og í Bandaríkjunum. Þá veitir samningurinn aukna möguleika á samstarfi milli flugfélaga beggja vegna Atlantshafsins svo sem til samvinnu um flugleiðir og leigu flugvéla svo og til eignarhalds evrópskra félaga í Bandaríkjunum og öfugt.
Þá hefur Ísland undirritað loftferðarsamning við Indland og er það fyrsti samningur ríkjanna á þessu sviði.  Samningurinn heimilar flugrekendum ríkjanna að stunda áætlunarflug með farþega til tveggja ákvörðunarstaða í hvoru ríki auk áfanga- og viðkomustaða á flugleiðinni sem og víðtækra heimilda fyrir fraktflug. Samningurinn opnar einnig möguleika fyrir íslenska flugrekendur til að bjóða upp á leiguflug milli Íslands og Indlands. Þá styrkir samningurinn við Indland möguleika íslenskra flugrekenda sem hafa sinnt og vilja sinna verkefnum í þessum heimshluta.
Á síðasta ári voru loftferðasamningar áritaðir við eftirtalin ríki: Víetnam, Kúveit, Aserbaídsjan, Túrkmenistan, Sýrland, Dóminíska lýðveldið og Tyrkland. meira

Hljóðstigsvottorð (Noise Certificate)

Allar flugvélar og þyrlur sem hafa tegundarvottorð (Type Certificate) útgefið af EASA þurfa nú að vera með Hljóðstigsvottorð. Á vef EASA er að finna upplýsingar um samþykkt hljóðstig fyrir allar gerðir flugvéla og þyrlna sem eru með EASA TC (http://www.easa.eu.int/ws_prod/c/c_tc_noise.php). Helst koma upp vandamál við að finna rétt hljóðstig ef loftförum hefur verið breytt fyrir stofnun EASA (28 september 2003) og vottun breytinga ekki verið framkvæmd hjá EASA, þá skortir stundum upplýsingar inn til EASA.  Grunnreglugerð EASA (1592/2002) skilgreinir grunnkröfur til umhverfisverndar byggt á Viðauka 16 við Chicago sáttmálann (ICAO).

Hljóðstigsvottorðið EASA er gefið út á EASA Formi 45 af Flugmálastjórn Íslands í samræmi við hluta I í Parti 21 í reglugerð um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja, nr. 205/2007, (1702/2003). 

Frekari upplýsingar um framkvæmd útgáfu og gjaldtöku.
Umsóknareyðublað um hljóðstigsvottorð.

meira

Opnunartími skrifstofu Flugmálastjórnar Íslands um jól og áramót

Um jól og áramót verður skrifstofa Flugmálastjórnar að Skógarhlíð 12 opin sem hér segir:

23. desember – Þorláksmessa 09:00-16:00
24. desember – Aðfangadagur LOKAÐ – Þjónustunúmer frá 09:00 – 12:00 fyrir brýna þjónustu sem ekki þolir bið er 847-3847
25. desember – Jóladagur – LOKAÐ
26. desember – Annar í jólum – LOKAÐ
27. desember – LOKAÐ
28. desember – 09:00 – 16:00
29. desember – 09:00 – 16:00
30. desember – 09:00 – 16:00
31. desember – 09:00 – 12:00
1. janúar 2010 – LOKAÐ
2. janúar 2010 – LOKAÐ
3. janúar 2010 – LOKAÐ


Flugmálastjórn Íslands óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

meira

Flugmálastjórn Íslands óskar eftir að ráða eftirlitsmann í lofthæfi- og skrásetningardeild

Starfið felst einkum í eftirliti með lofthæfi loftfara og vottun og eftirliti með stjórnkerfum og fyrirtækjum sem annast viðhaldsmál.

Menntunar- og hæfnikröfur
Krafist er menntunar verkfræðings eða flugvéltæknis. Fimm ára reynsla af viðhaldi og/eða viðhaldstjórnun loftfara er æskileg, eða meistaragráða úr háskóla tengd lofthæfi loftfara. Ennfremur er þekking á hönnun loftfara og gögnum þeirra nauðsynleg og að viðkomandi þekki vel til úttekta og gæðakerfa. Viðkomandi þarf að hafa góð tök á íslensku og ensku. 

Við leitum að starfsmanni sem hefur góða samskiptahæfileika, örugga og þægilega framkomu og mikinn áhuga á flugstarfsemi. Hann þarf að geta sýnt af sér frumkvæði í starfi, vera skipulagður í verkum sínum og unnið undir miklu álagi. Launakjör taka mið af viðeigandi kjarasamningum opinberra starfsmanna.

Í boði er áhugavert starf hjá Flugmálastjórn þar sem hæfileikar og frumkvæði fá notið sín. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði. Flugmálastjórn áskilur sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum.

Frekari upplýsingar um starfið gefa Ómar Þór Edvardsson deildarstjóri í lofthæfi- og skrásetningardeild (sími 569 4235  /omar@caa.is) og Einar Örn Héðinsson framkvæmdastjóri flugöryggissviðs (sími 569 4187 /einarh@caa.is)

Vinsamlegast sendið umsóknir til Flugmálastjórnar Íslands, Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík fyrir 7. nóvember n.k. merktar:
„Flugmálastjórn – umsókn um starf eftirlitsmanns“

Flugmálastjórn Íslands er ríkisstofnun með u.þ.b. 40 starfsmenn. Hlutverk Flugmálastjórnar er að fara með stjórnsýslu á sviði flugmála innanlands og á alþjóðavettvangi, hafa eftirlit með hvers konar flugstarfsemi á vegum íslenskra aðila til að tryggja öryggi í flugi innanlands og utan. Flugmálastjórn leggur áherslu á jafnan rétt kvenna og karla til starfa.

meira

Páll S. Pálsson ráðinn deildarstjóri flugrekstrardeildar

Páll S. Pálsson deildarstjóri flugrekstardeildarFlugmálastjóri hefur ákveðið að gerð verði breyting á starfi Páls S. Pálssonar, aðstoðardeildarstjóra í flugrekstrardeild Flugmálastjórnar Íslands á grundvelli 19. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Breytingin felur í sér tilfærslu Páls í starf deildarstjórar flugrekstardeildar.

Páll S. Pálsson hefur víðtæka þekkingu og reynslu.  Hann  lauk atvinnuflugmannsprófi árið 1995 og starfaði sem flugmaður á ATR42 og Boeing 737 til ársins 2003 hjá Íslandsflugi og Bláfugli.  Þá starfaði Páll S. Hjá Flugfjarskiptum og kom einnig að þróun þjálfunarbúnaðar sem notaður er í flugstjórnarkerfum hjá Kögun. Páll S. starfaði m.a. í flugrekstrardeild Íslandsflugs áður en hann hóf störf hjá Flugmálastjórn Íslands árið 2005. Auk þess hefur Páll lokið þjálfun í flugöryggismálum hjá University of Southern California og námskeiðum í gæðamálum m.a. hjá Nigel Bauer & Associates.

Páll S. hefur frá 1.apríl 2008 gengt starfi aðstoðardeildarstjóra í flugrekstardeild.  Áður starfaði Páll sem eftirlitsmaður í flugrekstardeild frá 17. maí 2005.   Ráðning Páls í starf deildarstjóra tók gildi þann 1. október sl.

Flugmálastjórn Ísland óskar Páli S. til hamingju með starfið. meira

Skýring er varðar kröfur um lofthæfi Part M í almannaflugi

Flugmálastjórn Íslands vekur athygli á því að það er enn í gildi aðlögunartímabil til 28. september 2011 varðandi lofthæfistaðfestinga-vottorð (ARC) fyrir loftför í almannaflugi. Þetta á við um loftför sem voru með lofthæfiskírteini í gildi þann 28. september 2008. Þetta þýðir að eigendur / umráðamenn flugvéla sem voru með lofthæfiskírteini í gildi þann 28. september 2008 og hafa fengið þau endurútgefin ekki síðar en 28. september 2009  þurfa ekkert að gera að sinni. Við næstu endurútgáfu þarf hinsvegar að leggja fram samþykkta viðhaldsáætlun eins og skýrt er nánar í þessum gögnum. Hins vegar taka nú þegar gildi nýjar kröfur varðandi varahluti og flóknar viðgerðir

Sjá frekar leiðbeiningar og skýringar varðandi gildistöku Part M fyrir almannaflug
meira

Vesturflug ehf hefur fengið flugrekstrarleyfi með heimild til flutninga- og verkflugs með þyrlu

Vesturlfug ehf hefur fengið flugrekstrarleyfi með heimild til flutninga- og verkflugs.  Vesturflug ehf rekur eina þyrlu af gerðinni Eurocopter AS 350 B2. Flugmálastjórn Íslands óskar Vesturflugi  til hamingju með áfangann og óskar þeim góðs gengis. meira

Viðhaldsáætlanir vegna gildistöku PartM fyrir einka-/almannaflug

Vegna breytinga sem taka gildi þann 28. september varðandi áframhaldandi lofthæfi loftfara hefur Flugmálstjórn birt sniðmát (template) fyrir viðhaldsáætlun sem hægt er að nota fyrir einkaflugvélar. Reglurnar og leiðbeiningarefnið gildir fyrir loftför sem eru ekki starfrækt á flugrekendaskírteini (AOC)

Umsóknareyðublað, leiðbeningar og sniðmátið er hægt að nálgast hér.

meira

Part M fyrir einka-/almannflug - Breyting frá 28.09.2009

Flugmálastjórn Íslands vekur athygli á breytingum sem taka gildi þann 28. september 2009 varðandi áframhaldandi lofthæfi loftfara. Breytingarnar eru tilkomnar vegna reglugerðar EC 2042/2003 viðauka I með áorðnum breytingum (EC 707/2006, 337/2007 og 1056/2008) og snerta einkum einkaflug, flugskóla og verkflug.

Flugmálastjórn Íslands mælir eindregið með því að eigendur/umráðendur loftfara svo og flugvirkjar og tæknistjórar setji sig strax vel inn í þessa reglugerð og þá einkum viðauka I (Annex I) sem fjallar um PART-M ( Íslensk reglugerð nr. 206/2007 sbr. 1047/2007). 

Frekari upplýsingar um breytingarnar má finna hér á heimasíðu Flugmálstjórnar.

Vinsamlegast hafið samband við eftirlitsmenn lofthæfi- og skrásetningardeildar ef þið þurfið leiðbeiningar eða nánari upplýsingar.

meira

Ákvarðanir Flugmálastjórnar Íslands nr. 3 og 4

Með auglýsingum í Stjórnartíðindum nr. 728 og 729/2009 hafa Ákvarðanir Flugmálastjórnar Íslands nr. 3 og 4 öðlast gildi. meira

Skipulagsreglur fyrir Reykjavíkurflugvöll staðfestar

Samgönguráðherra hefur samþykkt skipulagsreglur fyrir Reykjavíkurflugvöll og öðlast þær gildi við birtingu í Lögbirtingablaðinu í dag, föstudag 7. ágúst. Reglurnar og uppdrætti má sjá hér að neðan.

Uppkast að reglunum var kynnt á tímabilinu 17. mars til 14. apríl í ár. Þrettán athugasemdir og ábendingar bárust og voru ýmsar breytingar gerðar með hliðsjón af þeim. Greinargerð hefur verið send þeim sem gerðu athugasemdir.


Umsagnir um athugasemdir við skipulagsreglurnar(Word)
 

Reykjavíkurflugvöllur – skipulagsreglur – uppdráttur 1(PDF)
 

Reykjavíkurflugvöllur – skipulagsreglur – uppdráttur 2 (PDF)
 

Reykjavíkurflugvöllur – skipulagsreglur – uppdráttur 3(PDF)

meira

Ársskýrsla Flugmálastjórnar Íslands 2008

Forsíða ársskýrslu 2008

Ársskýrsla Flugmálastjórnar Íslands fyrir árið 2008 er komin út.  Í skýrslunni fjallar Pétur K. Maack flugmálastjóri meðal annars um starfssemi eftirlitsstofnana og segir frá því að Flugmálastjórn Íslands fer með stjórnsýslu og eftirlit á sviði loftferða og er því bæði bakjarl þeirra sem stunda flug og varðhundur almennings gagnvart þeim og starfssemi þeirrra.  Í skýrslunni koma auk þess fram tölulegar upplýsingar um flugflota íslenskra flugrekanda, flugtíma og fjölda skírteinishafa sem hafa skírteini í gildi gefin út af Flugmálastjórn.
meira

Flugstoðir ohf. og Keflavíkurflugvöllur ohf. fá starfsleyfi

Starfsleyfin afhent, frá vinstri: Björn ÓIi Hauksson, forstjóri Keflavíkurflugvallar, Theodór Freyr Hervarsson, framkvæmdastjóri eftirlits- og spásviðs hjá Veðurstofu Íslands, Kristján L. Möller samgönguráðherra, Brandur St. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Flugfjarskipta, Þorgeir Pálsson, forstjóri Flugstoða og Reynir Sigurðsson, framkvæmdastjóri flugleiðsögu- og flugvallasviðs Flugmálastjórnar Íslands.Samgönguráðherra, Kristján L. Möller, afhenti í dag fyrir hönd Flugmálastjórnar Íslands, við hátíðlega athöfn, Flugstoðum ohf. og Keflavíkurflugvelli ohf. starfsleyfi til að veita þjónustu á sviði flugleiðsögu auk þess sem ráðherra afhenti Keflavíkurflugvelli, fyrir hönd Flugmálastjórnar Íslands, flugvallarskírteini sem felur í sér heimild til reksturs flugvallar í flokki 1 til fimm ára.

Ný íslensk reglugerð nr. 631/2008 um starfsleyfi flugleiðsöguþjónustu, þar sem innleidd var reglugerð Evrópusambandsins, felur í sér að í dag þurfa þeir sem æskja þess að starfrækja flugleiðsöguþjónustu að sækja um starfsleyfi til Flugmálastjórnar Íslands (FMS).  FMS sem sinnir hlutverki tilnefnds eftirlitsstjórnvalds, skal með vottun sinni tryggja að viðkomandi fyrirtæki uppfylli kröfur reglugerðarinnar.  Með þessu hafa kröfur til veitenda flugleiðsöguþjónustu innan Evrópu og samevrópska loftrýmisins verið samræmdar.

Í dag hafa fjögur íslensk fyrirtæki starfsleyfi til að veita þjónustu á sviði flugleiðsögu, Flugstoðir ohf., Keflavíkurflugvöllur ohf., Veðurstofa Íslands og Flugfjarskipti ehf. en tvö síðastnefndu fyrirtækin fengu sín starfsleyfi í desember 2008.

Mikil vinna liggur að baki starfsleyfum hjá umsækjendum og ekki síður hjá Flugmálastjórn en undirbúningur hófst í byrjun árs 2007 þegar settur var á stofn starfshópur innan FMS sem hafði það verkefni að greina kröfur og setja verklagsreglur.  Mikil og náin samvinna hefur verið í umsóknarferlinu á milli Flugmálastjórnar og fyrirtækjanna við að aðlaga handbækur að nýjum kröfum og nýju umhverfi og þar með að sýna fram á uppfyllingu reglugerðarinnar.

Þá er Keflavíkurflugvöllur ohf. fyrsti flugvöllur landsins til að fá flugvallarskírteini afhent til fimm ára og er flugvöllurinn þar með vottaður skv. Rg. nr. 464 um flugvelli frá árinu 2007. Vottun flugvalla á Íslandi hófst árið 2004 en þá var reglugerð um flugvelli fyrst gefin út hérlendis. Reglugerðin endurspeglar að mestu leyti Viðauka 14, Hluta I og II við Chicago sáttmálann hvað varðar flugvelli í flokki I.

Flugmálastjórn Íslands óskar Flugstoðum ohf. og Keflavíkurflugvelli ohf. til hamingju með áfangann.

meira

Ómar Þór Edvardsson ráðinn deildarstjóri lofthæfi- og skrásetningardeildar

Ómar Þór Edvardsson nýr deildarstjóri lofthæfi- og skrásetningardeildarÓmar þór Edvardsson hefur verið ráðinn deildarstjóri lofthæfi- og skrásetningardeildar Flugmálastjórnar Íslands frá og með 1. júní 2009.

Ómar Þór hefur víðtæka þekkingu og reynslu.  Hann lauk námi vélvirkjun frá Verkmenntaskólanum á Akureyri 1985,  Flugvirkjun frá Sierra Academy of Aeronautics í Oakland í Kaliforníu í Bandaríkjunum 1988, flugvélarafeindafræði frá Southern Alberta Institue of Technology í Calgary í Kanada 1993 auk þess sem Ómar Þór er vélaiðnfræðingur með leyfisbréf útgefið af iðnaðarráðuneytinu árið 1996.

Ómar Þór hefur starfað sem eftirlitsmaður í deildinni frá því í nóvember 2001 en áður starfaði hann m.a. sem flugvirki og flugvélarafeindavirki hjá Landhelgisgæslu Íslands, Íslandsflugi, Atlanta og Continental Airlines í San Francisco í Bandaríkjunum.
Ómar Þór er giftur Báru Einarsdóttur og eiga þau tvo syni. 
Flugmálastjórn Íslands óskar Ómari Þór til hamingju með nýja starfið. meira

Keilir með starfsleyfi til kennslu í flugumferðarstjórn

Keilir hefur fengið starfsleyfi til kennslu í flugumferðarstjórn samkvæmt nýrri reglugerð nr. 404/2008.  Fram til október 2008 hefur allt nám flugumferðarstjóra farið fram á vegum þeirra sem veita flugumferðarþjónustu sem í dag eru Flugstoðir ohf. og Keflavíkurflugvöllur ohf.  Nú geta aðrir skólar, sem uppfylla kröfur reglugerðar 404/2008, fengið kennsluleyfi frá Flugmálastjórn Íslands til að kenna  grunnnám í flugumferðarstjórn og hefur Keilir nú slíka heimild ásamt Flugskóla Íslands.

Kennsluleyfi Keilis nær til grunnþjálfunar flugumferðarstjóra.  Þetta er stór áfangi í uppbyggingu flugakademíu Keilis og mun fyrsti hópurinn útskrifast úr náminu í vor.
Flugmálastjórn Íslands óskar Keili til hamingju með áfangann.

meira

Bókun á 1546. flugráðsfundi 25. mars 2009 vegna tilskipunar ESB um losunarheimildir CO2

Flugráð ítrekar og telur afar brýnt að reynt verði til þrautar að ná fram undanþágum á grundvelli tillagna sem stýrihópur um losunarheimildir í flugi lagði fram í minnisblaði til samgönguráðherra 9. september 2008 að viðbættri tillögu um undanþágu vegna millilendingar á Íslandi í flugi yfir Evrópu vegna tæknilegra ástæðna.

Í stýrihópnum voru fulltrúar samgönguráðuneytis, utanríkisráðuneytis, umhverfisráðuneytis og Flugmálastjórnar Íslands.

Mikilvægt er að samningsmarkmiðin liggi skýr fyrir hið fyrsta og þar verði í forgangi krafan um að íslenskt innanlandsflug verði undanþegið kerfinu.

Ljóst er að gildistaka tilskipunarinnar er eftir 9 mánuði þegar flugrekendur hefja söfnun reynslu sem gefur aðgang að takmörkuðum sjóði ókeypis heimilda.    Hætt er við, að samningsstaðan gagnvart ESB veikist ef tíminn er ekki nýttur vel og íslenskum kröfum um undanþágur verði vísað frá eða ná ekki fram vegna tímaþrots.

Flugráð mælist til að geta fylgst með framvindu málsins og samningaviðræðum við ESB.

Minnisblað stýrihóps um losunarheimildir i flugi um sérstöðu Íslands við setningu kvóta á losun koltvísýrings í flugi - tillögur um hugsanlegar undanþágur (dagsett 09.09.2008)

meira

Traust til Flugmálastjórnar Íslands mælist 3,8 stig

Skipting svaraÍ árlegri viðhorfskönnun Capacent Gallup um traust almennings til Flugmálstjórnar Íslands í samanburði við tólf aðrar stofnanir og þróun þar á mælist Flugmálastjórn Íslands með traust almennings upp á 3,8 stig af 5 mögulegum sem er 0,1 stigi minna en í fyrra.
Flugmálastjórn heldur þó þriðja sæti í samanburði við aðrar stofnanir á eftir Háskóla Íslands og lögreglunni.
65,1% ber mikið eða frekar mikið traust til Flugmálastjórnar Íslands en 6,5% bera frekar lítið eða lítið traust til stofnunarinnar.
Viðhorfskönnunin var framkvæmd 11. til 25. febrúar 2009 með netkönnun og var úrtakið 2400 manns 18 ára og eldri af öllu landinu, handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.  Svarhlutfall var 62,8%

Samanburður við aðrar stofnanir      Þróun frá febrúar 2003 meira

Flugmálastjórn Íslands óskar að ráða deildarstjóra í lofthæfi- og skrásetningardeild

Starfssvið deildarstjóra
Starfið felst í skipulagningu á starfsemi deildarinnar, samskiptum við erlenda og innlenda aðila varðandi lofthæfimál svo og bein þátttaka í verkefnum deildarinnar.  Megin verkefnin eru heimildarveitingar varðandi viðhaldsstöðvar og viðhaldsstjórnun svo og eftirliti með lofthæfi loftfara, tæknilegri starfssemi flugrekenda og skrásetningu loftfara.

Menntunar- og hæfnikröfur
Krafist er menntunar flugvéltæknis eða flugvélaverkfræðings og ítarlegrar þekkingar á vottun loftfara, íhluta og rekstrareininga svo og viðhaldi og viðhaldsstjórnun.  Umtalsverð reynsla annaðhvort er varðar upphafslofthæfi eða viðvarandi lofthæfi og viðhaldsstjórnun er skilyrði svo og a.m.k. fimm ára reynsla af úttektum og gæðakerfum.  Nauðsynlegt er að viðkomandi þekki vel til krafna EASA á sviði lofthæfi, gæðakerfa, úttekta og nútíma úttektaraðferða. Viðkomandi þarf að hafa mjög góð tök á íslensku og ensku. 

Við leitum að starfsmanni sem hefur góða samskiptahæfileika, örugga og þægilega framkomu og brennandi áhuga á flugöryggi . Hann þarf að sýna af sér frumkvæði í starfi og vera skipulagður í verkum sínum.  Hann þarf að geta unnið undir miklu álagi.   Launakjör taka mið af viðeigandi kjarasamningum opinberra starfsmanna.

Í boði er áhugavert starf hjá Flugmálastjórn þar sem hæfileikar og frumkvæði fá notið sín.   Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið gefur Einar Örn Héðinsson framkvæmdastjóri flugöryggissviðs (sími 569-4187 og einarh@caa.is ) og Halla S. Sigurðardóttir framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs (sími 569-4305 og hallas@caa.is ).

Vinsamlegast sendið umsóknir til Flugmálastjórnar Íslands, Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík fyrir 23 mars n.k. merktar:
„Flugmálastjórn – umsókn um starf deildarstjóra“

meira

Námskeið í öryggisstjórnunarkerfum (SMS) 3.-5. mars 2009

 

Öryggisstjórnunarkerfi — Safety Management Systems (SMS)

Námskeið fyrir ábyrgðarmenn, gæðastjóra, flugrekstrarstjóra, yfirmenn þjálfunar, yfirmenn starfsemi á jörðu niðri og tæknistjóra

Markmiðið er að gera þáttakendur færa um að beita öryggisstjórnun í sínum fyrirtækjum.

Á námskeiðinu er farið í öryggishugtök, öryggisstjórnun, hættur, áhættu, reglugerðir, skipulag SMS,  rekstur SMS, innleiðing SMS, Flugöryggisáætlun

 

 Dagskrá dags 1   (08:30-14:30)
 08:30-12:00 Reglugerðaumhverfið (PSP), SMS fræðilegir hlutir (SVÓ)
 12:00-12:45 Matarhlé á staðnum
 12:45-14:30 SMS fræðilegir hlutir (SVÓ)
 14:30 Degi 1 slitið
 
 Dagskrá dags 2   (08:30-14:30)
 08:30-12:00 SMS fræðilegir hlutir (SVÓ), Tilkynningarskylda (YRY)
 12:00-12:45 Matarhlé á staðnum
 12:45-14:30 State Safety Programme (EÖH)
 14:30 Degi 2 slitið
 
 Dagskrá dags 3   (08:30-11:30)
 08:30-11:30 SMS praktískir hlutir (EÓ)
 11:30  Námskeiði slitið
 
 Dagsetning: 3, 4 og 5.mars 2009
 Staður: Flugmálastjórn Íslands, Skógarhlíð 12, 5. hæð
 Verð: 80.000 kr. Allt innifalið, námsgögn og viðurværi
 Hámarksfjöldi þátttakenda 16 manns
 Leiðbeinendur:
Einar Óskarsson, Einar Örn Héðinsson,
Páll S. Pálsson, Sveinn V. Ólafsson
 Fyrirspurnir: pall.s.palsson@caa.is eða í síma 5694322 (Páll)
 Skráning: solveig@caa.is
 Dagskrá til útprentunar
meira

Breytingar varðandi hlustun á neyðarsenda

Athygli er vakin á því að 1. febrúar 2009 mun COSPAS/SARSAT gervihnattakerfið formlega hætta hlustun og úrvinnslu á merkjum sjálfvirkra neyðarsenda á tíðnunum 121,5 og 243 MHz. Frá 1. febrúar 2009 verður því formlega einungis hlustun og úrvinnsla á merkjum á tíðninni 406 MHz sbr. C-NOTAM nr. 0005/09 BIRD COSPAS/SARSAT . Sjá nánar http://www.cospas-sarsat.org/MainPages/indexEnglish.htm

Frá 1. febrúar 2009 mun flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík því einungis berast boð um senda á 121,5 MHz ef þau eru innan drægis frá móttökustöðvum á Reykjavíkurflugvelli og Vaðlaheiði. Einnig munu áfram berast boð um merki á tíðninni 121,5 MHz þegar flugvélar á flugi heyra í þeim og tilkynna það.

Á Íslandi er nú unnið að reglugerðarbreytingu varðandi kröfur um nýju neyðarsendana og munu þær breytingar verða kynntar fljótlega.

    Í meginatriðum er gert ráð fyrir að kröfurnar verði svohljóðandi:
  • Íslenskar flugvélar, eða flugvélar á vegum íslenskra aðila notaðar til einkaflugs og hafa fengið lofthæfiskírteini fyrir 1. júlí 2008 skulu búnar neyðarsendi, ELT. Flugmálastjórn Íslands getur veitt undanþágu til notkunar á sjálfvirkum sendi fyrir flugvélar sem sendir eingöngu á tíðninni 121.5 MHz að hámarki til 1. febrúar 2010.
  • Íslenskar flugvélar, eða flugvélar á vegum íslenskra aðila notaðar til einkaflugs og hafa fengið lofthæfiskírteini eftir 1. júlí 2008 skulu búnar sjálfvirkum neyðarsendi, ELT (AF).
  • Íslenskar flugvélar, eða flugvélar á vegum íslenskra aðila notaðar til verk- og kennsluflugs skulu búnar sjálfvirkum neyðarsendi, ELT (AF). Flugmálastjórn Íslands getur veitt undanþágu til notkunar á sjálfvirkum sendi fyrir flugvélar notaðar til verk- og kennsluflugs sem sendir eingöngu á tíðninni 121.5 MHz að hámarki til 1. október 2009.

Þess má geta að krafan um 406 MHz neyðarsenda hefur nú þegar tekið gildi t.d. í Danmörku og Svíþjóð. Málið er í undirbúningi í Kanada og víðar. Flugvélaeigendur eru hvattir til að huga að þessu máli og og koma sér upp þessari nýju gerð neyðarsenda við fyrsta tækifæri til tryggja að bestu mögulegu upplýsingar séu tiltækar þegar reynir á leit og björgun.

      meira

      Ný reglugerð um flutningaflug nr. 1263/2008 hefur verið birt og tekur gildi 1. febrúar nk.



      Reglugerð þessi tekur til flutningaflugs í almenningsflugi með íslenskum og erlendum flugvélum sem íslenskur flugrekandi notar eða ræður yfir í samræmi við ákvæði OPS 1.1001 í viðauka I við reglugerð þessa. meira

      Veðurstofa Íslands og Flugfjarskipti fá starfsleyfi til að veita þjónustu á sviði flugleiðsögu

      Reynir Sigurðsson framkvæmdastjóri flugleiðsögu- og flugvallasviðs afhendir Brandi St. Guðmundssyni forstjóra Flugfjarskipta starfsleyfiðÞau tímamót urðu tveimur dögum fyrir jól hjá Flugmálastjórn Íslands að gefin voru út starfsleyfi í flugleiðsöguþjónustu til handa Veðurstofu Íslands og Flugfjarskiptum ehf.  Ný íslensk reglugerð nr. 631/2008 um starfsleyfi flugleiðsöguþjónustu, þar sem innleidd var reglugerð Evrópusambandsins, felur í sér að í dag þurfa þeir sem æskja þess að starfrækja flugleiðsöguþjónustu að sækja um starfsleyfi til Flugmálastjórnar Íslands (FMS).  FMS sem sinnir hlutverki Reynir Sigurðsson framkvæmdastjóri flugleiðsögu- og flugvallasviðs afhendir Magnúsi Jónssyni Veðurstofustjóra starfsleyfiðtilnefnds eftirlitsstjórnvalds, skal með vottun sinni tryggja að viðkomandi fyrirtæki uppfylli kröfur reglugerðarinnar.  Með þessu hafa kröfur til veitenda flugleiðsöguþjónustu innan Evrópu og samevrópska loftrýmisins verið samræmdar.

      Mikil vinna liggur að baki starfsleyfum umsækjendanna tveggja og ekki síður hjá Flugmálastjórn en undirbúningur hófst í byrjun árs 2007 þegar settur var á stofn starfshópur innan FMS sem hafði það verkefni að greina f.v. Magnús Jónsson veðursofustjóri, Pétur K. Maack flugmálastjóri og Brandur St. Guðmundsson forstjóri Flugfjarskiptakröfur og setja verklagsreglur.  Umsóknir Flugfjarskipta og Veðurstofu Íslands um starfsleyfi bárust í júní og júlí 2007 og náin samvinna hófst á milli Flugmálastjórnar og fyrirtækjanna við að aðlaga handbækur að nýjum kröfum og nýju umhverfi og þar með að sýna fram á uppfyllingu reglugerðarinnar.

      Flugmálastjórn Íslands óskar Flugfjarskiptum ehf. og Veðurstofu Íslands til hamingju með nýju starfsleyfin og þakkar ánægjulegt samstarf í vottunarferlinu.

                                            f.v. Reynir Sigurðsson, Hlín Hólm, Brandur St. Guðmundsson, Björn H sigurðsson, Hildur B. Hannesdóttir, Benedikt Gröndal, Sveinn V. Ólafsson og Margrét Hrefna Pétursdóttirf.v. Reynir Sigurðsson, Hlín Hólm, Theodór Freyr Hervarsson, Barði Þorkelsson, Sigrún Karlsdóttir, Magnús Jónsson, Margrét Hrefna Pétursdóttir, Benedikt Gröndal og Sveinn V. Ólafsson

      meira

      Villa í reglugerð um flug- og vinnutímamörk og hvíldartíma flugverja.

      Í ljós hefur komið villa í töflu í Reglugerð um flug- og vinnutímamörk og hvíldartíma flugverja,  OPS 1.1115 - "Framlenging á flugvakt vegna hvíldar í flugi". meira

      Nýjar reglur fyrir farþega sem ferðast til Bandaríkjanna

      Nýjar reglur gilda frá 12. janúar 2009 fyrir farþega sem ferðast til Bandaríkjanna.  Sækja þarf um ferðaheimild á vefsíðu ESTA Electronic System for Travel Authorization hjá U.S. Department of Homeland Security.

      Til að styrkja öryggisráðstafanir ferðalaga til Bandaríkjanna með rafræna vegabréfskerfinu hafa skilyrði til að ferðast án vegabréfsáritunar verið aukin. Þegnar landa í rafræna vegabréfskerfinu eru enn hæfir til að ferðast án vegabréfsáritunar en verða að hafa fengið samþykkta ferðaheimild áður en þeir fara til Bandaríkjanna.

      Svona virkar ferðaheimildarferlið:
      Heimavarnarráð Bandaríkjanna og Toll- og landamæraverðir Bandaríkjanna hafa útvegað öruggt vefsvæði með sjálfvirkt eyðublað fyrir þig eða þriðja aðila, til að fylla út til að sækja um ferðaheimild. Þegar þú hefur skráð persónu- og ferðaupplýsingar sem þarf á örugga vefsvæðinu, verður umsóknin unnin af kerfinu til að ákvarða hvor þú ert hæf(ur) til að ferðast til Bandaríkjanna undir rafræna vegabréfskerfinu án vegabréfsáritunar. Kerfið mun gefa þér sjálfkrafa svar og áður en farið er í vélina mun flutningsaðili ganga úr skugga um hjá Toll- og landamæravörðum Bandaríkjanna að þú hafir samþykkta ferðaheimild á skrá.

      Sækja um ferðaheimild

      meira

      Flugmálastjórn Íslands óskar eftir að ráða eftirlitsmann í lofthæfi- og skrásetningardeild

      Starfssvið eftirlitsmanns
      Starfið felst m.a. í eftirliti með lofthæfi loftfara, tæknilegri starfssemi flugrekenda og skrásetningu loftfara.

      Menntunar- og hæfnikröfur
      Krafist er menntunar flugvéltæknis eða flugvélaverkfræðings og ítarlegrar þekkingar á nýjustu reglum um viðhald og viðhaldsstjórnun.  Þekking á hönnun loftfara og gögnum þeirra og a.m.k. fimm ára reynsla af viðhaldi og/eða viðhaldstjórnun loftfara er einnig nauðsynleg.  Æskilegt er að viðkomandi þekki vel til úttekta og nútíma úttektaraðferða varðandi lofthæfi og viðhaldstjórnun loftfara . Viðkomandi þarf að hafa mjög góð tök á enskri tungu. 

      Við leitum að starfsmanni sem hefur góða samskiptahæfileika, örugga og þægilega framkomu og brennandi áhuga á flugöryggi . Hann þarf að geta sýnt af sér frumkvæði í starfi og vera skipulagður í verkum sínum.  Hann þarf að geta unnið undir miklu álagi.   Launakjör taka mið af viðeigandi kjarasamningum opinberra starfsmanna.

      Í boði er áhugavert starf hjá Flugmálastjórn þar sem hæfileikar og frumkvæði fá notið sín.   Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

      Frekari upplýsingar um starfið gefur Sigurjón Sigurjónsson,  deildarstjóri í lofthæfideild- og skrásetningardeild (sími 569-4117 og ss@caa.is) og Halla S. Sigurðardóttir framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs (sími 569-4303 og hallas@caa.is).

      Vinsamlegast sendið umsóknir til Flugmálastjórnar Íslands, Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík fyrir 15. desember n.k. merktar:
      „Flugmálastjórn – umsókn um starf eftirlitsmanns“

      Flugmálastjórn Íslands er ríkisstofnun með u.þ.b. 40 starfsmenn.  Hlutverk Flugmálastjórnar er að fara með stjórnsýslu á sviði flugmála innanlands og á alþjóðavettvangi, hafa eftirlit með hvers konar flugstarfsemi á vegum íslenskra aðila til að tryggja öryggi í flugi innanlands og utan.  Flugmálastjórn leggur áherslu á jafnan rétt kvenna og karla til starfa.

      meira

      Drög að EASA reglugerð um flutningaflug (Part-OPS)

      EASA hefur tilkynnt að útgáfu draga að reglugerð (NPA - Notice of Proposed Amendment) um flutningaflug og reglugerð um flugrekendur utan EASA/ESB  hefur verið frestað til loka janúar 2009.  Jafnframt hefur tímafrestur til þess að skila inn athugasemdum vegna NPA fyrir skírteinareglugerð og krafna til fyrirtækja tengd flugrekstri, verið framlengdur til 28. febrúar 2009.

      Nánari upplýsingar eru að finna á heimasíðu EASA

      Vakin er athygli á því að nú eru til umsagnar á heimasíðu EASA drög að reglugerðum m.a. á eftirfarandi sviðum:

      PART-FCL  Skírteinamál - NPA 2008 - 17(a)
      PART-MED  Heilbrigðiskröfur - NPA 2008 - 17(c)
      PART-OR   Kröfur um stjórnkerfi fyrirtækja (Organisation requirement) NPA 2008 - 22(c)

      Fljótlega er von á fleiri skjölum til umsagnar þ.m.t. PART-OPS varðandi kröfur um flugrekstur sem mun í framtíðinni leysa JAR-OPS og EU-OPS

      Frestur til athugasemda er tilgreindur á heimasíðu EASA sbr. vefslóðina:
      http://www.easa.eu.int/ws_prod/r/r_npa.php

      Mikilvægt er að vanda athugasemdir og eru það gæði athugasemda sem skipta máli en ekki fjöldi athugasemda við tilteknar kröfur. Athugasemdum er komið til skila rafrænt og er það nánar skýrt á heimasíðu EASA. Mælst er til þess að afrit af athugasemdum sé sent til Flugmálastjórnar Íslands á netfangið fms@caa.is

      meira

      Flugskóli Íslands kennir flugumferðarstjórn

      Flugskóli Íslands fékk í október, fyrstur íslenskra skóla, heimild til kennslu í flugumferðarstjórn samkvæmt nýrri reglugerð nr. 404/2008.  Með reglugerðinni breyttist landslagið töluvert en fram að þessu hefur allt nám flugumferðarstjóra farið fram á vegum þeirra sem veita flugumferðarþjónustu sem í dag eru Flugstoðir ohf. og Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli.  Nú geta aðrir skólar, sem uppfylla kröfur reglugerðar 404/2008 fengið heimild frá Flugmálastjórn Íslands til að kenna flugumferðarstjórn og er Flugskóli Íslands fyrstur til að fá slíka heimild.

      Kennsluleyfi Flugskóla Íslands nær til bóklegs undirstöðunáms í flugumferðarstjórn sem er hluti af grunnnámi flugumferðarstjóra. 
      Flugmálastjórn Íslands óskar Flugskóla Íslands til hamingju með áfangann.

       

      meira

      Fjölmenni á kynningu á kröfum um öryggisstjórnunarkerfi (SMS-kerfi)

      Fjólmenni á kynningu um SMS kerfiFlugmálastjórn Íslands hélt kynningu á öryggisstjórnunarkerfum (Safety Management Systems - SMS) og kröfum tengdum þeim fyrir flugrekendur fimmtudaginn 20. nóvember 2008. Fjölmennt var á kynningunni sem þótti takast vel.  Flugmálastjórn þakkar þeim sem mættu og vonar að kynningin nýtist þeim í starfi.






      Þáttakendur á kynningunniHér má sjá glærukynningarnar sem notaðar voru á kynningarfundinum:
      Reglugerðir og kröfur tengdar öryggisstjórnunarkerfi (SMS)
      Grundvallaratriði öryggisstjórnunarkerfis (SMS)
      Öryggisstjórnunarkerfi (SMS)fyrir flugrekendur
      EASA from JARs to IRs - Requirements for Air Operations
       
        meira

      Flugvöllurinn í Pristina afhentur

      Fánar Albaníu, Kósóvó, Evrópusambandsins og ÍslandsFlugmálastjórn Íslands afhenti við hátíðlega athöfn þann 30. október s.l.  flugvallaskírteini til flugvallarstjóra Pristina flugvallar í Kósóvó og vottaði þar með flugvöllinn samkvæmt kröfum og tilmælum í Viðauka 14 við sáttmála Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO). Flugvöllurinn hefur því hlotið vottun til að þjóna borgaralegu flugi í alþjóðlegu millilandaflugi. Forsaga málsins er sú að í byrjun desember 2003 átti sér stað samtal milli Harri Holkeri, (Special Representative of the Secretary General (SPSR))  hjá Sameinuðu þjóðunum og Davíðs Oddssonar þáverandi forsætisráðherra Íslands þar sem falast var eftir því að íslensk stjórnvöld myndu koma að vottun og uppbyggingu flugvallarins. Í sama mánuði var samtalinu fylgt eftir með bréfi sem leiddi til samnings milli UNMIK (United Nation Mission in Kosovo) og íslenskra stjórnvalda sem undirritaður var í mars 2004.
       
      Pétur K. Maack flugmálastjóri Íslands og Agron Mustafa flugvallastjóri Pristina Internatnional AirportMeginverkefni Flugmálastjórnar Íslands á Pristina flugvelli, samkvæmt samningnum, var að flugvöllurinn gæti þjónað sem borgaralegur flugvöllur samkvæmt alþjóðlegum kröfum sem um slíka flugvelli gilda. Til þess að það væri hægt var Flugmálastjórn Íslands falið það verkefni að sjá um þjálfun og útgáfu skírteina fyrir flugumferðarstjóra og aðstoð og eftirlit með flugumferðarstjórn.
       
      Frá vinsti, Haukur Hauksson Flugstoðum, Nils Eric Nyqvist, Swedavia, Pétur K. Maack Flugmálastjóri, Sture Erikson, Gunnlaugur Guðmundsson Flugstoðum Ennfremur að annast útgáfu Flugmálahandbókar (AIP Kosovo) og að koma á veðurþjónustu. Lang viðamesta verkefnið var vottun flugvallarins samkvæmt Viðauka 14. Því verkefni tengdist einnig veruleg ráðgjöf sem flugumferðar- og flugvallasvið Flugmálastjórnar Íslands annaðist í fyrstu en Flugstoðir tóku við á síðustu tveimur árum samningsins.   Það verkefni náði til uppbyggingu flugumferðarstjórnar, framkvæmda á flugvellinum, tækjabúnaðar, uppbyggingu slökkviliðs og annarra deilda.
      Hópmynd frá afhendingunni Auk þess var um að ræða þjálfun starfsmanna sem nauðsynleg er til flugvallarreksturs sem og þróun gæðakerfis og öryggisstjórnunarkerfis.
      Strax á fyrsta ári verkefnisins voru gefin út skírteini 17 flugumferðarstjóra að lokinni þjálfun og heilbrigðisskoðun en seinna fengu 9 starfsmenn fulla þjálfun á Íslandi til að veita flugumferðarþjónustu . Alls hafa 26 Kósóvóbúar fengið þjálfun og skírteini flugumferðarstjóra frá Íslandi.
      Starfsmenn Flugmálastjórnar Íslands Guðjón Atlason, eftirlitsmaður flugvalla og Ágústa R. Jónsdóttir deildarstjóri flugvalla- og flugverndardeildar Vottun flugvallarins hófst strax í mars 2004 með upphafsúttekt eftirlitsmanna Flugmálastjórnar Íslands á flugvellinum. Úttektin tók til flugvallarins í heild sinni þ.m.t. innviða hans, s.s. tækjabúnaðar, flugbrauta, akbrauta og ljósabúnaðar. Úttektin tók einnig til daglegs reksturs flugvallarins, daglegra verkferla, reksturs og þróunar flugvallarins sem og gerð og innleiðing flugvallarhandbókar sem m.a. inniheldur öryggisstjórnunar- og gæðakerfi. Þessum verkefnum fylgdi þjálfun starfsfólks.
      Frá visntri, Merita Makslli AIS Kosovo, Lorik Abdullah, C. Ramphul frá Caro ásamt hermanni Þá störfuðu Íslendingar um lengri og skemmri tíma á flugvellinum, þ.á.m. var um tíma íslenskur flugvallarstjóri, gæðastjóri og slökkviliðsstjóri.
      Á þessum fjórum og hálfu ári frá því fyrsta bráðabrigða flugvallarskírteinið var gefið út fyrir borgaralegan flugvöll hefur flugvöllurinn verið rekinn sem alþjóðlegur flugvöllur þar sem þó nokkur evrópsk flugfélög fljúga inn á og nota sem hluta af sínu leiðarkerfi.
      Það segir kannski eitthvað að Airport Council International kaus flugvöllinn árið 2006 sem besta evrópska alþjóðaflugvöllurinn með færri en milljón farþega.
      Flugmálastjórn Íslands er stolt af því hvernig til hefur tekist í þessu verkefni sem er ekki síst að þakka góðu samstarfi við Flugstoðir ohf., UNMIK og CARO (Civil Aviation Regulatory Office). Sem eini flugvöllurinn og jafnframt aðal tenging Kosovo við umheiminn hefur vottunin mikið gildi fyrir íbúa Kósóvó.
      meira

      Fundur um viðskipti með losunarheimildir 3. nóvember.

      Umhverfisráðuneytið boðar til opins fundar um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda og fyrirhugaðar breytingar á því.

      Hér á landi er nú unnið að innleiðingu tilskipunar Evrópusambandsins um viðskiptakerfið. Flug mun falla undir gildissvið tilskipunarinnar frá og með 1. janúar 2012 og gert er ráð fyrir að ári síðar falli fleiri tegundir starfsemi þar undir, þ.á.m. áliðnaður.

      Thomas Bernheim, sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, flytur erindi um viðskiptakerfið og endurskoðun þess. Að því loknu verður efnt til pallborðsumræðna með þeim Pétri Reimarssyni, Samtökum atvinnulífsins, Kristínu Lindu Árnadóttur, forstjóra Umhverfisstofnunar, Árna Finnssyni, formanni Náttúruverndarsamtaka Íslands og Óttari Frey Gíslasyni frá EFTA.

      Fundurinn verður mánudaginn 3. nóvember, kl. 14:00-16:00 í Sal B á Hótel Sögu. Hann fer fram á ensku. Þátttaka tilkynnist með tölvupósti á postur@umhverfisraduneyti.is.

      meira

      Kynning á kröfum um öryggisstjórnunarkerfi (SMS)

      Flugmálastjórn Íslands mun halda kynningu á öryggisstjórnunarkerfum (Safety Management Systems - SMS) og kröfum tengdum þeim fyrir flugrekendur fimmtudaginn 20. nóvember n.k. kl.: 8:30 - 12:00 að Skógarhlíð 12  -  5. hæð.


      Dagskráin verður í meginatriðum sem hér segir:

      1. Grundvallaratriði SMS
      Principles / basics of SMS

      2. Reglugerðir og aðrar kröfur tengdar SMS
      Regulations & standards relating to SMS

      3. SMS fyrir flugrekendur
      SMS approach for airlines

      4. Spurningar
      Questions


      Kynningin er einkum ætluð tilnefndum yfirmönnum flugrekenda fyrir flugrekstur (JAR-OPS/EU-OPS) og viðhaldsstjórnun (PART-M), ásamt gæðastjórum og öðrum áhugasömum.
      Staðfesting um þáttöku óskast send fyrir 10. nóvember n.k. og skal send á solveig@caa.is.  Þáttökugjald er ekkert.

      meira

      Þyrlufélagið hefur fengið flugrekstrarleyfi með heimild til verkflugs

      Þyrlufélagið hefur fengið flugrekstrarleyfi með heimild til verkflugs.  Þyrlufélagið rekur eina þyrlu af gerðinni Schweizer Hughes 269C. Flugmálastjórn Íslands óskar Þyrlufélaginu til hamingju með áfangann og óskar þeim góðs gengis.
      Heimasíða Þyrlufélagsins
      meira

      Losunarheimildir CO2 í flugi - Lokaskýrsla

      Lokaskýrsla stýrihóps um losunarheimildir á koltvísýringi (CO2) í flugi er komin út.  Samgönguráðherra skipaði í janúar s.l. stýrihóp sem ætlað var að meta heildræn áhrif kvótasetningar á losun koltvísýrings (CO2) í flugi.    Að mati stýrihópsins er mikilvægt að íslensk stjórnvöld fylgist með málinu innan ESB og komi íslenskri sérstöðu á framfæri þar. meira

      Ársskýrsla Flugmálastjórnar Íslands 2007

      Ársskýrsla Flugmálastjórnar Íslands fyrir árið 2007 er komið út.  Í skýrslunni fjallar Pétur K. Maack meðal annars um flugmál á árinu og kynnir stefnu stofnunarinnar, gildi og markmið.  Í skýrslunni koma auk þess fram tölulegar upplýsingar um flugflota íslenskra flugrekanda, flugtíma og fjölda skírteinishafa sem hafa skírteini í gildi gefin út af Flugmálastjórn.
      Sjá skýrsluna í heild meira

      Breytingar á kröfum um talstöðvarskírteini

      Ekki er lengur krafa um að handhafar skírteina sem nota talstöðvar við störf sín hafi sérstök talstöðvaskírteini sem Póst- og fjarskiptastofnun hefur gefið út.  Í nýrri reglugerð um skírteini nr. 400/2008 er búið að fella niður greinar frá eldri reglugerð þar sem þessi krafa kom fram.  Nýjar kröfur um tungumálakunnáttu hafa komið í staðinn og er sú kunnátta nú skráð í skírteinið, sem viðhengi við það  til að byrja með.

      meira

      Nýjar reglur um aðstoð við fatlaða sem ferðast með flugi

      Sett hefur verið reglugerð um vernd og aðstoð við fatlaða farþega í flugi.  Reglugerðinni er ætlað að tryggja að rekstraraðilar flugvalla og flugrekendur veiti þessum farþegahópi nægilega aðstoð og sporna þannig gegn mismunun gagnvart þeim.  Reglugerðin sem tekur gildi 26. júlí 2008 er innleiðing á reglugerð Evrópuþingsins og Evrópuráðsins nr. 1107/2006 frá 5. júlí 2006 um réttindi fatlaðs og hreyfihamlaðs fólks sem ferðast með flugi.  Reglugerðin tekur til flugs innan landa Evrópusambandsins og evrópska efnahagssvæðisins.

      Nauðsynlegt er að farþegar sem óska aðstoðar á flugvelli eða í flugvél láti vita af þeirri þörf þegar gengið er frá pöntun flugfars. Ber flugrekanda og/eða ferðaskrifstofu að koma beiðni farþega áfram til rekstraraðila flugvallar sem ábyrgð ber á því að veita aðstoðina.

      Sjá frekari upplýsingar:
      Réttur fatlaðra til þjónustu
      Skipulagning ferðar
      Fyrirkomulag aðstoðar
      Lok ferðar
      Synjun á flutningi

      meira

      Norðurflug hefur fengið heimild til farþega- og vöruflugs

      Norðurflug hefur fengið heimild til farþega- og vöruflugs frá og með 19. júní 2008. Norðurflug hefur fram til þessa verið með leyfi til verkflugs og rekur þrjár þyrlur af gerðinni Eurocopter AS-350, SA-365N og Bell 206. Flugmálastjórn Íslands óskar Norðurflugi til hamingju með áfangann og óskar þeim góðs gengis.

      Erindi sem flutt voru um áfangaskýrslu stýrihóps um losunarheimildir á koltvísýringi (CO2) í flugi

      Erindi sem flutt voru á kynningarfundar á vegum Flugráðs um áfangaskýrslu stýrihóps um
      losunarheimildir á koltvísýringi (CO2) í flugi  á Hótel Loftleiðum, fimmtudag, 5. júní kl. 10.00.
      Mikilvægi og afleiðingar útblásturskvóta í flugi: meira

      Áfangaskýrsla stýrihóps um losunarheimildir á koltvísýringi (CO2) í flugi

      Þann 18. janúar 2008 skipaði samgönguráðherra stýrihóp, sem ætlað er að meta
      heildrænt áhrif kvótasetningar á losun koltvísýrings (CO2) í flugi, en á vegum
      Evrópusambandsins (ESB) eru um þessar mundir til umfjöllunar tillögur um að
      flugsamgöngur verði felldar undir tilskipun 2003/87/EC um viðskiptakerfi með
      losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda. meira

      Fjölmennur flugöryggisfundur

      Flugmálafélag Íslands stóð fyrir fjölmennum flugöryggisfundi um miðjan maí en flugvélaeigendur og einkaflugmenn voru sérstaklega hvattir til að mæta.
      Matthías Sveinbjörnsson var fundarstjóri en fulltrúar Rannsóknarnefndar flugslysa fóru yfir alvarleg flugatvik sem gerðust á árinu 2007.  Þá talaði Sigurjón Sigurjónsson deildarstjóri lofthæfi- og skrásetningardeildar Flugmálastjórnar Íslands um breytingar á reglugerðum um viðhald einkaflugvéla og Hlín Hólm flugumferðarstjóri og sérfræðingur Flugmálastjórnar tók mannlega þáttinn í einkaflugi fyrir.

      Hér má sjá glærukynningarnar þeirra:
      Viðhald einkaflugvéla- Breytingar- Sigurjón Sigurjónsson
      Mannlegi þátturinn og einkaflugið- Hlín Hólm meira

      Flugöryggisfundur fimmtudaginn 15. maí 2008

      Flugöryggisfundur verður fimmtudaginn. 15. maí 2008 á Hótel Loftleiðum og hefst fundurinn kl. 20:00

      Fundarstjóri er Matthías Sveinbjörnsson

      Dagskrá:
      20:05 – 20:10 Opnun

      20:10 – 21:00 Alvarleg flugatvik árið 2007 - Rannsóknarnefnd flugslysa
      [Þorkell Ágústsson / Bragi Baldursson]

      21:00 – 21:15 Kaffihlé

      21:15 – 21:40 Viðhald einkaflugvéla - breytingar
      [Sigurjón Sigurjónsson]

      21:40 – 22:05 Mannlegi þátturinn og einkaflug
      [Hlín Hólm]

      22:05 – Stutt kvikmynd

      Fyrirspurnir verða í lok hvers dagskrárliðar. Kaffiveitingar verða í boði Flugmálastjórnar Íslands

      Allt áhugafólk um flugmál velkomið. Flugvélaeigendur og einkaflugmenn eru hvattir til að mæta.

      Flugmálafélag Íslands
      Flugmálastjórn Íslands
      Flugstoðir
      Rannsóknarnefnd flugslysa
      www.flugmal.is

      meira

      Flugmálastjóri telur að án flugs vildu væntanlega fáir búa á Íslandi í dag.

      Á málstofu Samgönguráðs um samgöngur og byggðaþróun sem haldin var á Hótel Sögu fimmtudaginn 17. apríl sagði flugmálastjóri að Íslendingar væru um 10 sinnum umfangsmeiri í flutningaflugi en Bandaríkjamenn miðað við höfðatölu.
      Umfang flugs á Íslandi er staðreynd sem ekki allir gera sér grein fyrir.  Ef teknir eru saman flugtíma íslenskra flugrekenda á árinu 2006 sem voru 195.000 má áætla að heildarverðmæti þess flugs væri yfir 120 milljarða virði.  Á sama tíma sýna útreikningar Hagstofu Íslands að heildar framleiðslutekjur í flugsamgöngum voru um 85 milljarðar af 2.179 milljarða heildar framleiðsluvirði ársins 2006.
      “Flug er gríðarlega mikilvæg starfssemi á Íslandi og í raun grundvöllur búsetu í landinu” sagði Pétur K. Maack flugmálastjóri.  “Fjöldi farþega í innanlandsflugi árið 2007 er sá mesti frá upphafi en um 240 þúsund manns hafa flogið fram og til baka sem er heldur meiri fjöldi en metárið 1999 þegar samkeppnin í innanlandsfluginu var hvað mest”.
      Um 470 þúsund Íslendingar fóru úr landi með flugi árið 2007.  Íslendingar eru flugþjóð að mati flugmálastjóra “Íslendingar ferðast með flugi nú til dags og vilja ferðast með flugi”

      Sjá glærur af fyrirlestrinum sem flugmálastjóri flutti.

      meira

      Flugmálastjóri talar um flug og byggðaþróun á málþingi Samgönguráðs 17. apríl

      Stefnumótun í samgöngum

      Samgönguráð efnir til sjötta fundar í fundaröð sinni um stefnumótun í samgöngum. Fundarefnið að þessu sinni er:

      Samgöngur og byggðaþróun

      Ferðavenjur sumarið 2007 – Bjarni Reynarsson, skipulagsfræðingur, ráðgjafi hjá Land-ráði sf.

      Fjárhagsstaða hafna/vandi landsbyggðarinnar – Sveinn Agnarsson, hagfræðingur, Hagfræðistofnun HÍ

      Flug og byggðaþróun – Pétur Maack, flugmálastjóri

      Búferlaflutningar og samgöngubætur á Íslandi 1986-2006 –  Vífill Karlsson, hagfræðingur, dósent við Háskólann á Bifröst

      Staðsetning íbúðarhúsnæðis og tengsl við verð á Stór-höfuðborgarsvæðinu – Ásgeir Jónsson, hagfræðingur, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings

      Umræður og fyrirspurnir


      Fundarstjóri er Dagur B. Eggertsson formaður samgönguráðs


      Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 17. apríl 2008 kl. 14:30 – 17:00 á Hótel Sögu Reykjavík í salnum Harvard II. Fundurinn verður jafnframt sýndur á Veraldarvefnum á slóðinni: www.straumur.hotelsaga.is – að því búnu er valið: Samgönguráð. Aðgangur er ókeypis. Væntanlegir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að skrá sig á netfangið postur@sam.stjr.is eigi síðar en klukkan 12:00 þann 17. apríl 2008.

       

      meira

      Ný gjaldskrá Flugmálastjórnar Íslands

      Ný gjaldskrá fyrir þjónustu Flugmálastjórnar Íslands hefur tekið gildi. Smellið á tengilinn til að skoða.
      Gjaldskrá nr. 158/2008
      meira

      Nýtt skipurit Flugmálastjórnar Íslands tekur gildi í dag

      Breytingar hafa verið gerðar á skipuriti Flugmálastjórnar Íslands með því að færa stjórnsýslu, vottun og eftirlit með flugleiðsögu- og flugvöllum undir eitt svið. Það er gert til þess að leggja áherslu á mikilvægi þessa málaflokks til jafns við vottun og eftirlit með flugrekstri og lofthæfi. meira