PART-M Nýjar reglur um lofthæfi.

Flugmálastjórn Íslands vekur athygli á þeim breytingum sem tóku gildi þann 28. september 2009 varðandi áframhaldandi lofthæfi loftfara. Breytingarnar eru tilkomnar vegna reglugerðar EC 2042/2003 viðauka I með áorðnum breytingum (EC 707/2002, EC 376/2007 og EC 1056/2008). Hér er reynt er að kynna og útskýra áhrif reglugerðarinnar á flugstarfsemi aðra en flutningaflug.

Gildistakan breytir þó nokkru fyrir einkaflug, flugskóla og verkflug á Íslandi. Innleiðing á þessari reglugerð átti fyrst að vera 28. september 2008 en var frestað um eitt ár. Þessi frestun og kynning á áhrifum gildistökunnar var m.a. kynnt á Flugöryggisfundi þann 15. maí 2008.

Reglurnar gilda fyrir loftför sem eru ekki starfræktar á flugrekendaskírteini (AOC)

Almennt leiða reglurnar ekki til þess að það sé íþyngjandi að eiga og starfrækja einkaflugvél, en þar sem formfestan verður meiri, ferlin lengri og reglurnar nokkuð margar og flóknar gætu mönnum einfaldlega fallist hendur. En það er vel hægt að setja sig inn í þetta og ná tökum á því.

Athuga skal að það er enn í gildi aðlögunartímabil til 28. september 2011 varðandi lofthæfistaðfestinga-vottorð (ARC) fyrir loftför í almannaflugi. Þetta á við um loftför sem voru með lofthæfiskírteini í gildi þann 28. september 2008. Þetta þýðir að eigendur / umráðamenn flugvéla sem voru með lofthæfiskírteini í gildi þann 28. september 2008 og hafa fengið þau endurútgefin ekki síðar en 28. september 2009  þurfa ekkert að gera að sinni. Við næstu endurútgáfu þarf hinsvegar að leggja fram samþykkta viðhaldsáætlun eins og skýrt er nánar í þessum gögnum. Hins vegar taka nú þegar gildi nýjar kröfur varðandi varahluti og flóknar viðgerðir

Með aðild Íslands að EASA og reglugerð EC 2042/2003  (íslensk reglugerð nr. 206/2007 smb. 1047/2007) var ábyrgðinni um viðvarandi/áframhaldandi lofthæfi skipt á milli nokkurra ,,leikenda” sem hafa mismunandi hlutverk.

EC reglugerðin nr. 2042/2003 með áorðnum breytingum tekur m.a. á útgáfu og endurnýjum staðfestingarvottorðs fyrir lofthæfi (Airworthiness Review Certificate - ARC)

Fram til þessa hafa eigendur, umráðendur og verkstæði getað tekið afstöðu til framkvæmdar viðhalds en frá og með 28. september 2009 eru komnar nýjar kröfur um stjórnun viðhaldsins.
 
Sjá yfirlitsmynd 1.
Sjá yfirlitsmynd 2.

Með EC reglugerðinni 2042/2003 með áorðnum breytingum var komið á fót nýju fyrirbæri/fyrirtæki CAMO – Continuing Airworthiness Management Organisation.

CAMO fyrirtæki ber ábyrgð á að útfæra kröfurnar um viðhald og skoðun og skilgreina hvers konar vottanna er krafist í tengslum við einstök verk.

Til þess að fá heimild til reksturs CAMO þarf að uppfylla ýmsar kröfur varðandi aðbúnað, aðföng og starfsmenn. Flugmálastjórn Íslands tekur út og vottar CAMO fyrirtæki og veitir heimild að uppfylltum skilyrðunum.

Hingað til eru það aðeins flugrekendur á Íslandi sem hafa fengið heimildir til reksturs CAMO fyrirtækis og það virðist vera skortur á CAMO fyrirtækjum sem geta tekið að sér viðhaldsstjórnun fyrir algengar einkaflugvélar á Íslandi.

FMS mælir eindregið með því að eigendur /umráðendur loftfara svo og flugvirkjar og tæknistjórar setji sig vel inn í reglugerð EC 2042/2003 með áorðnum breytingum og þá einkum viðauka I (Annex I) sem fjallar um PART-M.
Reglugerð EC 1056/2008 mun birtast í september 2009 á íslensku.  Sú reglugerð ásamt reglugerðum 206/2007 og 1047/2007 eru til samans reglugerðin  EC 2042/2003 með áorðnum breytingum.
 

 Hægt er að nálgast viðeigandi reglugerðir hér:


Hafir þú sem eigandi/umráðandi einkaflugvélar látið flugvirkja annast viðhald og viðhaldsstjórnunina fyrir þig, settu þig sem allra fyrst í samband við hann til að fá ráð um hvað gera skuli til að flugvélin verði áfram lofthæf eftir 28. september 2009.
 

Til �tprentunar i heild