Ómar Þór Edvardsson, deildarstjóri lofthæfi- og skrásetningardeildar
Beinn sími 569 4235
Fax 562 3619
Netfang omar@caa.is
Deildin ber m.a. ábyrgð á úttektum og vottun viðhaldsstöðva loftfara og viðhaldsstjórnun flugrekenda, svokölluðum lofthæfifyrirtækjum (CAMO). Deildin sér um skráningu loftfara og heldur loftfaraskrá sem er hin lögformlega skráning á eignarhaldi loftfara í eigu íslenskra aðila, annast mat á lofthæfi og gefur út lofthæfiskírteini.
Starfsemi lofthæfi- og skráningardeildar byggir einkum á reglugerðum Evrópusambandsins nr. 1592/2002, 1702/2003 og 2042/2003 sem EASA gefur út. Reglugerð 1592 fjallar um grunnkröfur um lofthæfi, 1702 (Part 21) fjallar um vottun og upprunalofthæfi loftfara og hluta þeirra og 2042 (Part-M, Part-145, Part-66 og Part-147) fjallar um áframhaldandi lofthæfi og kröfur til viðhaldsvotta og skóla.
Deildin annast meðal annars:
- Reglubundið eftirlit, þar með talið, úttektir og vottun íslenskra Part 145 viðhaldsstöðva og leiðarstöðva (line stations), Part M lofthæfifyrirtækja og Part 147 skóla.
- Tæknilegum úttektum á íslenskum loftförum og einnig á erlendum loftförum í tengslum við svonefnda SAFA áætlun. (SAFA = Safety Assessment of Foreign Aircraft).
- Eftirliti með viðhaldi einkaflugvéla.
- Mat á lofthæfi þ.e. útgáfa og endurnýjun lofthæfivottorða sem staðfestir að loftfar sé lofthæft að uppfylltum ákveðnum kröfum.
- Útgáfu loftfaraskrár, þ.e. lögformleg eigandaskráning loftfara. Einnig sér deildin um allar nýskráningar, afskráningar og breytingum á eignarhaldi loftfara sem eru í notkun á Íslandi.
- Mat á menntun, þjálfun og prófum flugvéltækna.
- Samskipti við erlendar flugmálastjórinir flugrekendur og framleiðendur loftfara um málefni er varða lofthæfi.
- Þátttaka í starfi EASA við samræmingu og innleiðingu reglna ásamt ýmsum samskiptum við stofnunina um lofthæfimál og starfsemi leyfishafa.
Auk þess sem úttektir eru gerðar reglulega til þess að fylgjast með að gildandi kröfum sé fylgt í hvívetna eru samskipti við flugrekendur og viðhaldsfyrirtæki mikil varðandi innleiðingu og túlkun á kröfunum. Nokkur hluti starfseminnar felst í ráðgjöf og yfirferð ýmissa gagna og handbóka sem tengjast leyfishöfum.
Ómar Þór hefur víðtæka þekkingu og reynslu. Hann lauk námi vélvirkjun frá Verkmenntaskólanum á Akureyri 1985, Flugvirkjun frá Sierra Academy of Aeronautics í Oakland í Kaliforníu í Bandaríkjunum 1988, flugvélarafeindafræði frá Southern Alberta Institue of Technology í Calgary í Kanada 1993 auk þess sem Ómar Þór er vélaiðnfræðingur með leyfisbréf útgefið af iðnaðarráðuneytinu árið 1996.
Ómar Þór tók við starfi deildarstjóra í deildinni 1. júní 2009 en hafði starfað sem eftirlitsmaður í deildinni frá því í nóvember 2001. Áður starfaði Ómar Þór m.a. sem flugvirki og flugvélarafeindavirki hjá Landhelgisgæslu Íslands, Flugfélagi Norðurlands, Íslandsflugi, Atlanta og Continental Airlines í San Francisco í Bandaríkjunum.