Lofthæfifyrirmæli flugöryggissviðs
Samkvæmt ákvörðun Flugmálastjórnar nr. 1/2005 skal fylgja lofthæfifyrirmælum frá því ríki / ríkjum sem loftfarið er hannað í og eða ríki / ríkjum sem gefa út tegundarskírteini. Útgáfur Flugöryggisstofnunar Evrópu (EASA) á lofthæfifyrirmælum koma þó í stað framangreindra lofthæfifyrirmæla eftir því sem þau verða til. Eftirfarandi tengill vísar á EASA þar sem finna má yfirlit yfir lofthæfifyrirmæli og tengla á Flugmálstjórnir eða flugvélaframleiðendur sem hafa lofthæfifyrirmæli aðgengileg á sínum heimasíðum.
Flugmálastjórn Íslands (ICAA)
Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA)
Sérstaklega skal tekið fram að eigandi eða umráðandi loftfars ber ábyrgð á því að lofthæfifyrirmælum sem eiga við loftfarið sé framfylgt og skal á það bent í því samhengi að Flugmálastjórn ábyrgist ekki að öll lofthæfifyrirmæli sem kunna að eiga við íslensk loftför sé að finna undir ofangreindum tenglum. Einnig ef misræmi milli birtra lofthæfifyrirmæla á síðu Flugmálastjórnar og raunverulegra fyrirmæla kemur í ljós gildir útgáfan sem gefin er út frá því ríki / ríkjum sem loftfarið er hannað í og eða ríki / ríkjum sem gefa út tegundarskírteini.