Hljóðstigsvottorð (Noise Certificate)

Allar flugvélar og þyrlur sem hafa tegundarvottorð (Type Certificate) útgefið af EASA þurfa nú að vera með Hljóðstigsvottorð. Á vef EASA er að finna upplýsingar um samþykkt hljóðstig fyrir allar gerðir flugvéla og þyrlna sem eru með EASA TC (http://www.easa.eu.int/ws_prod/c/c_tc_noise.php). Helst koma upp vandamál við að finna rétt hljóðstig ef loftförum hefur verið breytt fyrir stofnun EASA (28 september 2003) og vottun breytinga ekki verið framkvæmd hjá EASA, þá skortir stundum upplýsingar inn til EASA.  Grunnreglugerð EASA (1592/2002) skilgreinir grunnkröfur til umhverfisverndar byggt á Viðauka 16 við Chicago sáttmálann (ICAO).

Hljóðstigsvottorðið EASA er gefið út á EASA Formi 45 af Flugmálastjórn Íslands í samræmi við hluta I í Parti 21 í reglugerð um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja, nr. 205/2007, (1702/2003).


Umsóknareyðublað um hljóðstigsvottorð

    Framkvæmd útgáfu og gjaldtaka
  • Hljóðstigsvottorð skal gefa út fyrir hvert loftfar, þegar það er skráð í loftfaraskrá og fær íslenska skráningarstafi, ekki verður um reglulega endurnýjun þessarra vottorða að ræða, því ekki þarf að endurnýja þau nema ef breytingar eru gerðar sem hafa áhrif á hljóðstyrk loftfarsins, en það eru t.d. breytingar á hreyflum, skrúfum eða hámarksþyngdum. Jafnframt þarf að gefa út nýtt vottorð ef skráningarstöfum (TF-) loftfarsins er breytt. Hljóðstigsvottorðið skal ætíð vera aðgengilegt ásamt með öðrum gögnum sem tilheyra loftfarinu.
  • Gjaldtaka fyrir útgáfu hljóðstigsvottorðs er fast verð í gjaldskrá Flugmálastjórnar og á við um öll loftför í atvinnuflugi og á einnig við um loftför til einkanota og kennslu sem falla undir þessi EASA ákvæði.
  • Ef um einfalda útgáfu er að ræða þar sem öll gögn liggja fyrir er fast gjald IKR 9.040.-. Hinsvegar ef kalla þarf eftir gögnum og eða leita þarf eftir upplýsingum eða samþykki frá EASA kemur til tímagjald.
  • Glatað hljóðstigsvottorð er hægt að fá endurútgefið gegn gjaldi.
  • Við nýskráningar allra loftfara ber að skila inn útfylltu umsóknareyðublaði.
  • Gefin verða út hljóðstigsvottorð fyrir þau loftför í einka- og kennsluflugi sem eru með lofthæfiskírteini í gildi og vottorðin verða send til eiganda eða umráðanda ásamt greiðsluseðli. Í þeim tilfellum þar sem ekki liggja fyrir nægilegar upplýsingar mun verða kallað eftir þeim gögnum sem vantar.
  • Þau loftför sem þegar eru á loftfraraskrá, en eru án lofthæfis í dag munu fá útgefin hljóðstigsvottorð samhliða nýju lofthæfisvottorði hafi slíkt hljóðstigsvottorð ekki þegar verið gefið út. Með umsókn um nýtt lofthæfiskírteini skal því fylgja umsókn um hljóðstigsvottorð.