Valdís Ásta AðalsteinsdóttirYfirmaður sérverkefnastofu og upplýsingafulltrúi er Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir:
Sími: 569 4124
Gsm: 847 3 847
Fax: 562 3619
valdis@caa.is





Sérverkefnastofa sér um að miðla upplýsingum um Flugmálastjórn til fjölmiðla og almennings. Þá sér hún einnig um framleiðslu á kynningarefni ýmiss konar um stofnunina og rekstur heimasíðu hennar. Hópar sem vilja heimsækja Flugmálastjórn og kynna sér starfsemi hennar hafi vinsamlegast samband við sérverkefnastofu.

Upplýsingafulltrúi svarar öllum fyrirspurnum fjölmiðla auk þess sem sérverkefnastofa tekur á móti þeim fyrirspurnum sem beinast til stofnunarinnar skráir og kemur í réttan farveg.

Sérverkefnastofa hefur umsjón með gæðamálum stofnunarinnar og framkvæmir innri úttektir auk þess að fylgja eftir málum sem skarast á deildir og svið stofnunarinnar.  Þá sér sérverkefnastofa um ferðabókanir starfsmanna stofnunarinnar auk þess sem innkaupum skrifstofubúnaðar og samskiptum vegna húsnæðis er stýrt þaðan.

Aðild Íslands að Alþjóðaflugmálastofnuninni ICAO krefst þess að tölulegum upplýsingum um íslenska flugstarfsemi sé miðlað til ICAO.  Sérverkefnastofa kallar eftir tölulegum upplýsingum frá flugrekendum og rekstraraðilum flugvalla og miðlar til ICAO eftir úrvinnslu.

Vinnsla og útgáfa ársskýrslu Flugmálastjórnar Íslands fer fram á sérverkefnastofu.

Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir er yfirmaður sérverkefnastofu og upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar Íslands.  Hún lauk  BA gráðu í félagsfræði með fjölmiðlafræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands árið 1999 og námi í mannauðsstjórnun frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands árið 2002.  Hún hefur starfað hjá Flugmálastjórn frá 2004.