Halla Sigrún Sigurðardóttir, frakvæmdastjóri stjórnsýslusviðsHalla Sigrún Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs og deildarstjóri almennrar stjórnsýsludeildar.
Beinn sími 569 4305
Fax 568 3916
Netfang hallas@caa.is




Almenn stjórnsýsla Flugmálastjórnar er afgreidd í stjórnsýsludeild. Má þar nefna erindi og samskipti  við ráðuneyti og sérstakar fyrirspurnir er ekki tengjast flugöryggismálum beint.  Haldið er utan um samskipti við Alþjóðaflugmálastofnunina (ICAO) og önnur erlend samtök og samráð við utanaðkomandi aðila vegna erinda og mála sem stofnuninni berast.

Unnin eru drög að reglugerðum og lögum í samvinnu við innanríkisráðuneytið og aðra tengda aðila og lagaleg ráðgjöf veitt til annarra sviða stofnunarinnar.

Kvörtunum farþega er sinnt í deildinni en það skal tekið fram að Flugmálastjórn gefur ekki bindandi álit í þessum málaflokki. Erindum almennings er svarað eftir að farþegi hefur haft samband við þann sem kvartað er yfir svo sem vegna seinkunar á flugi, aflýsingu flugs eða frávikningu frá borði.  Sjá réttindi flugfarþega.

Afgreiðsla umsókna til flugfélaga sem óska eftir heimildum til yfir-, leigu- eða áætlunarflugs koma til afgreiðslu í stjórnsýsludeild.

    Önnur verkefni á stjórnsýslusviði;

  • Móttaka Flugmálastjórnar heyrir undir stjórnsýslusvið. Þar er svarað í síma stofnunarinnar, tekið á móti umsóknum, veittar upplýsingar, tekið við skráningum í próf ofl. Starfsmenn í móttöku eru vegvísar viðskiptavina, hagsmunaaðila og gesta um stofnunina.
  • Starfsmannamál. Framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs fer með stjórnun starfsmannamála hjá Flugmálastjórn. Gerð er mannaflaáætlun í febrúar ár hvert og þjálfunaráætlanir fyrir starfsmenn ákveðnar. Launavinnslu er sinnt af fjármáladeild.
  • Skjalastjórnun. Hjá Flugmálastjórn Íslands er metnaður lagður í að skjalamál stofnunarinnar séu til fyrirmyndar og erindum sé svarað tímanlega. Stofnunin notar GoPro hópvinnukerfi í vinnslu skjala og skráningakerfið Gegnir heldur utan um bókakost stofnunarinnar.
  • Stefnumiðað árangursmat. Flugmálastjórn hefur innleitt stefnumiðað árangursmat til að halda utan um stefnu sína og framkvæmd hennar. Gert hefur verið stefnukort fyrir stofnunina og sett markmið fyrir helstu verkefni, síðan hafa mælikvarðar verið skilgreindir fyrir öll helstu verkefni.