1919 - 1939
Tilraunir til flugreksturs

 1919

 - Flugfélag Íslands nr. 1 stofnað
- Fyrsta flug á Íslandi í Vatnsmýrinni 3. september á Avro 504 K flugvél

 1920

 - Flugfélag Íslands nr. 1 hættir rekstri í árslok

 1924

 - Heimsflug Bandaríkjamanna með viðkomu á Íslandi. Locatelli og félagar fljúga um Ísland á vesturleið

 1928

 - Flugfélag Íslands nr. 2 stofnað og hefur flugrekstur í samvinnu við þýska flugfélagið Lufthansa

 1929





- Fyrstu lög um loftferðir samþykkt á Alþingi
- Styrkir veittir til flugnáms
- Samningur gerður um póstflutninga
- Fyrsti íslenski flugmaðurinn, Sigurður Jónsson hefur nám til atvinnuflugprófs í Þýskalandi
- Þrír Íslendingar hefja einnig nám í flugvirkjun
- Ahrenberg og von Gronau koma til landsins

 1930



- Fyrsti íslenski atvinnuflugmaðurinn, Sigurður Jónsson,  tekur til starfa hjá Flugfélagi Íslands
- Fjárstuðningur við Flugfélag Íslands frá hinu opinbera
- Graf Zeppelin kemur til Íslands
- Fyrsta einkaflugvélin, Irwin Meteorplane,  kemur til landsins

 1931


- Björn Eiríksson tekur til starfa sem flugmaður hjá Flugfélagi Íslands.
- Flugfélag Íslands nr. 2 leggur  upp laupana
- Graf Zeppelin kemur öðru sinni til Íslands og flytur með sér póst

 1932


- Transamerican Airlines Corp. veitt leyfi til flugs milli landa og innanlands
- von Gronau hefur viðkomu á Íslandi í heimsflugi
- Hollenskir flugmenn hefja veðurrannsóknarflug í Vatnsmýrinni á Fokker D. VII

 1933

- Hópflug Ítala yfir Atlantshaf (24 flugvélar) undir forystu Italo Balbo flugmarskálks og flugmálaráðherra
- Charles Lindberg og eiginkona hans Anne koma við á Íslandi

 1934

- Light og Wilson hafa viðkomu á Íslandi á austurleið

 1935

- Thor Solberg hefur viðkomu á leið austur um haf
- Agnar Kofoed-Hansen lýkur flugnámi hjá danska sjóhernum

 1936


- Agnar Kofoed-Hansen ráðinn flugmálaráðunautur ríkisins
- Bluebird flugvélin TF-LÓA keypt til landsins
- Svifflugfélag Íslands og Flugmálafélag Íslands stofnað í ágúst

 1937


- Flugfélag Akureyrar stofnað
- Fyrsta renniflug í Vatnsmýrinni
- Flugleyfi Pan American Airways framlengt

 1938



- Agnar Kofoed-Hansen ráðinn flugmaður hjá FA. Félagið hefur flug í apríl
- Þýskur svifflugsleiðangur kemur til Íslands
- Flugdagur á Sandskeiði
- Flugvallastæði á landinu könnuð

 1939

- Örn O. Johnson tekur við starfi flugmanns og framkvæmdastjóra FA
- Síðari heimsstyrjöldin hefst

 
 1940 - 1959
 Uppbygging á flugsamgöngum innanlands og milli landa við erfiðar aðstæður

 1940


- Bretar hernema Ísland og hefja uppbyggingu Reykjavíkurflugvallar
- Flugfélag Íslands (nr.3) stofnað upp úr Flugfélagi Akureyrar
- Ný Waco flugvél, Haförninn, keypt til landsins

 1941

- Reykjavíkurflugvöllur tekinn í notkun

 1942


- Keflavíkurflugvöllur tekinn í notkun
- Tveggja hreyfla flugvél, Beechcraft 18, TF-ISL, keypt til
- TF-ÖRN ferst á Reykjavíkurflugvelli

 1943

- Jóhannes R. Snorrason ráðinn til Flugfélags Íslands

 1944

- Ísland verður stofnaðili að Chicago samningnum og Alþjóðaflugmálastofnuninni ICAO
- Loftleiðir h.f. stofnaðar með einni Stinson Reliant flugvél

 1945




- Lög sett um gerð flugvalla og lendingarstaða
- Flugmálastjórn Íslands tekur til starfa. Erling Erlingsen ráðinn flugmálastjóri
- Fyrsta millilandaflugið til Skotlands með TF-ISP
- Flug hefst milli Bandaríkjanna og Svíþjóðar um Keflavíkurflugvöll
- Loftferðasamningur gerður við Bandaríkin

 1946







- Íslendingar taka við rekstri Reykjavíkurflugvallar af Bretum
- Íslensk stjórnvöld taka við Keflavíkurflugvelli
- Flugmálastjórn tekur við flugumferðarþjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu
- Fyrsta flugfreyjan hefur störf hjá Flugfélagi Íslandi
- Áætlunarferðir á vegum Flugfélags Íslands til Prestwick og Kaupmannahafnar með Liberator leiguflugvélum frá Scottish Airlines
- Einkaflugi vex fiskur um hrygg
- Vestmannaeyjaflugvöllur vígður, fyrsti flugvöllurinn sem Íslendingar byggja sjálfir

 1947

- Hekla, fyrsta DC-4 flugvélin kemur til landsins
- DC-3 flugvél Flugfélags Íslands ferst í Héðinsfirði

 1948



- Samningur gerður um alþjóðaflugþjónustuna
- Loftleiðir hefja áætlunarferðir milli Íslands og Bandaríkjanna
- DC-4 flugvélin Gullfaxi kemur til landsins
- Avro Anson flugvél Loftleiða ferst

 1949

- Flugfélag Íslands hefur áætlunarflug til London og Oslo
- Björn Pálsson hefur sjúkraflug með tveggja sæta KZ-III flugvél

 1950

- Geysir ferst á Bárðarbungu
- Flugskólinn Þytur stofnaður

 1951


- Agnar Kofoed-Hansen skipaður flugmálastjóri
- Samningur milli Íslands og ICAO um tækniaðstoð vegna flugöryggismála
- Glitfaxi, DC-3 flugvél Flugfélags Íslands ferst út af Keilisnesi

 1952


- Loftferðasamningur gerður við Luxemborg
- Loftleiðir hefja samstarf við Braathens flugfélagið
- Loftleiðir hætta innanlandsflugi eftir skiptingu flugleiða

 1953


- Egilsstaðaflugvöllur tekinn í notkun
- Átök um stjórn Loftleiða
- Loftleiðir hefja áætlunarflug milli Evrópu og Bandaríkjanna um Ísland

 1954

- Akureyrarflugvöllur vígður 5. desember

 1955

- Loftleiðir hefja flug milli Luxemborgar og New York
- Landhelgisgæslan hefur fiskveiðieftirlit með TF-RÁN

 1957

- Flugfélag Íslands tekur í notkun tvær Vickers Viscount flugvélar

 1958

- Ný flugöryggisáætlun (Air Safety Program) tekur gildi með atbeina Bandarísku flugmálastjórnarinnar, FAA,  og bandaríska flughersins

 1959

- Loftleiðir taka fyrstu DC-6B Cloudmaster flugvélina í notkun

 1960 - 1979
 Norður-Atlantshafsflugið og þotuöldin hefst

 1960

- Ísafjarðarflugvöllur tekinn í notkun

 1961

- Flugstöð á Akureyrarflugvelli tekin í notkun
- Flugmálastjórn flytur starfsemi sína í nýja flugturninn á Reykjavíkurflugvelli

 1962

- Nýr sæsímastrengur, SCOTICE og ICECAN lagður

 1963

- Hrímfaxi, Vickers Viscount flugvél Flugfélags Íslands ferst við Fornebu

 1964

- Loftleiðir taka í notkun CL-44 skrúfuþotur í N-Atlantshafsflugi
- Loftleiðir flytja flug sitt að fullu til Keflavíkurflugvallar

 1965

- Fyrsta Fokker Friendship F27 flugvélin kemur til landsins á vegum Flugfélags Íslands
- Landhelgisgæslan eignast fyrstu þyrluna, TF-EIR

 1967

- Fyrsta farþegaþotan, B-727, flugvélin Gullfaxi, kemur til landsins á vegum Flugfélags Íslands
- Millilandaflugið flyst endanlega af Reykjavíkurflugvelli til Keflavíkur

 1969

- Loftleiðir kaupa Air Bahama

 1970


- Loftleiðir taka í notkun DC-8-63 þotur á N-Atlantshafsleiðinni
- Loftleiðir standa að stofnun Cargolux
- Fokker F27 flugvél Flugfélags Íslands ferst í Færeyjum

 1971

- Flugstjórnarmiðstöðin tengist ratsjá varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli

 1973

- Flugleiðir hf. stofnaðar með sameiningu Loftleiða og Flugfélags Íslands

 1978

- DC-8-63 þota Flugleiða ferst í Colombo á Sri Lanka

 1979

- Flugleiðir taka í notkun Douglas DC-10 breiðþotu

 1980 - 1999
 Nýskipan í flugrekstri og uppbyggingu flugsamgöngukerfisins

 1985

- Ákvörðun tekin um endurnýjun ratsjárkerfis varnarliðsins

 1986

- Flugfélagið Atlanta stofnað
- Flugslysið í Ljósufjöllum

 1987

- Lög um flugmálaáætlun samþykkt á Alþingi
- Flugstöð Leifs Eiríkssonar tekin í notkun á Keflavíkurflugvelli

 1989

- Flugleiðir hefja endurnýjun flugflotans og fá fyrstu B-737-400 þotuna

 1990

- Ísland verður stofnaðili að Flugöryggissamtökum Evrópu (JAA)
- Fyrsta B-757-200 þotan kemur til landsins og þróun tengiflugsins á Íslandi hefst

 1991

- Íslandsflug stofnað

 1992

- Flugleiðir taka Fokker F50 flugvélar í notkun

 1993

- Nýr Egilsstaðaflugvöllur tekinn í notkun sem varaflugvöllur fyrir millilandaflug

 1994

- Ísland fær aðild að sameiginlegu flugsvæði Evrópusambandsríkjanna
- Landhelgisgæslan festir kaup á Eurocopter Super Puma þyrlu

 1996

- Nýja flugstjórnarmiðstöðin tekur til starfa á Reykjavíkurflugvelli

 1997

- Flugfélag Íslands endurvakið

 1999

- Endurbygging Reykjavíkurflugvallar hefst

 2000

- Flugvél Flugfélags Ísleifs Ottesen, TF-GTI, ferst í Skerjafirði

 2002

- Endurbyggingu Reykjavíkurflugvallar lokið