Í samræmi við 70.gr. sbr. 140. gr. laga nr. 60/1998 um loftferðir skipar Flugmálastjóri flugverndarráð. Skipunartími flugverndarráðs er fjögur ár.
Verkefni flugverndarráðs eru:
- reglubundin endurskoðun Flugverndaráætlunar Íslands og framkvæmd hennar, gerð tillagna til breytinga á áætluninni vegna þróunar í flugverndartækni eða annarri tækni eða öðrum þáttum, breytinga á hættustigi, aðgerðum eða öðrum skyldum þáttum
- að tryggja samstarf í flugverndaraðgerðum milli stjórnardeilda, stofnana og annarra aðila sem eru ábyrgir fyrir Flugverndaráætlun Íslands samkvæmt eðli og umfangi hættunnar
- að mæla með birtingu og samræma, í samvinnu við stjórnvöld breytingar á stefnu í flugverndarmálum
- að taka til skoðunar tillögur flugverndarnefnda flugvalla og mæla með breytingum til rekstraraðila flugvalla, flugrekenda og annarra aðila auk Flugmálastjórnar Íslands þar sem við á
- styðja flugverndarsjónarmið í hönnun nýrra mannvirkja eða við breytingar á þeim.
Ákvörðun Flugmálastjórnar Íslands, um skipan og starfsemi flugverndarráðs er nr. 6/2006
Fundi flugverndarráðs skal halda eftir þörfum en eigi sjaldnar en tvisvar á ári. Flugverndarráði er heimilt að setja á stofn sérstaka vinnuhópa til að skoða tiltekin málefni og leita aðstoðar og fulltingis hagsmunaaðila í því efni.
Auk fastra fulltrúa má bjóða öðrum þátttöku á fundum ráðsins eftir þörfum, s.s. til að tryggja sérþekkingu og reynslu við umfjöllun mála.
Eftirfarandi flugverndarráðsmenn voru skipaðir af Pétri K. Maack, Flugmálastjóra með skipunarbréfi dagsettu 28. janúar 2007:
- Ágústa R. Jónsdóttir, formaður, skipaðuð án tilnefningar
- Stefán Thordersen, skipaður skv. tilnefningu Flugvallarstjórans á Keflavíkurflugvelli
- Jón F. Bjartmarz, skipaður skv. tilnefningu Ríkislögreglustjóra
- Jón Mímir Einvarðsson, skipaður skv. tilnefningu Flugrekenda
- Gunnar Flóvenz, skipaður skv. tilnefningu Flugrekenda
- Gunnar Schram, skipaður skv. tilnefningu Lögreglustjórans á Keflavíkurflugvelli
- Árni Birgisson, skipaður skv. tilnefningu Flugstoða ohf.