Í samræmi við 3.gr. laga nr. 100/2006 um Flugmálastjórn Íslands skipar samgönguráðherra flugráð. Skipunartími flugráðs er fjögur ár eða þar til embættistíma ráðherra lýkur.

 

    Verkefni flugráðs eru að:
  • Fjalla um stefnumótun í flugmálum
  • Veita samgönguráðherra umsögn um tillögu samgönguráðs að samgönguáæltun sbr. lög um samgönguáætlun
  • Fjalla um rekstraráætlanir Flugmálastjórnar
  • Fjalla um gjaldskrártillögur
  • Veita umsögn um lög og reglur er varða flugmál
  • Fjalla um málefni sem samgönguráðherra eða Alþingi sendir flugráði til umfjöllunar
  • Fjalla um mál sem flugmálastjóri eða einstakir flugráðsmenn óska að fjallað verði um

 

Reglugerð um flugráð er nr. 1290/2007

Flugmálastjóri situr fundi ráðsins með málfrelsi og tillögurétt ásamt þeim starfsmönnum Flugmálastjórnar sem hann telur ástæðu til eða ráðið óskar eftir. Flugráð getur óskað eftir áliti flugmálastjóra ef þörf þykir.

Með flugráði starfar Sigurbergur Björnsson, skrifstofustjóri í innanríkisráðuneytinu.

 

 

    Eftirfarandi flugráðsmenn voru skipaðir af Ögmundi Jónassyni, innanríkisráðherra með skipunarbréfi dagsettu 11. maí 2011:
  • Gunnlaugur S. Stefánsson, formaður, skipaður án tilnefningar
  • Auður Alfífa Ketilsdóttir, skipuð án tilnefningar 
  • Gísli Baldur Garðarsson, skipaður án tilnefningar
  • Árni Gunnarsson, skipaður skv. tilnefningu Samtaka atvinnulífsins
  • Jens Bjarnason, skipaður skv. tilnefningu Samtaka atvinnulífsins
  • Lárus Atlason, skipaður skv. tilnefningu Samtaka ferðaþjónustunnar