Leiðbeiningar um niðurhal eyðublaða af vef Flugmálastjórnar Íslands
Notendur Internet Explorer vefrápara get átt í einhverjum erfiðleikum með niðurhal á eyðublöðum af heimasíðu Flugmálastjórnar Íslands. Þeir erfiðleikar eru ekki beintengdir vefsíðunni heldur er um ‘Pop-up’ vörn að ræða sem er uppsett í vafranum í tölvunni þinni.
Það sem kemur upp er þetta:

Til að losna við losna við þessa viðvörun í hvert skipti sem einhverju er hlaðið niður af vefnum okkar þá er best að gera eftirfarandi:
Internet Explorer:
1. Farðu í ‘Tools’ valmyndina og þaðan í ‘Pop-up Blocker’ og svo ‘Pop-up Blocker Settings’.

2. Þá kemur upp eftirfarandi gluggi:

Í reitinn fyrir neðan ‘Address of website to allow:’ skaltu skrifa *.caa.is og smella svo á ‘Add’ hnappinn. Lokaðu svo glugganum með því að smella á ‘Close’ hnappinn.
3. Farðu nú aftur á www.caa.is og prófaðu að hlaða niður eyðublaði. Nú ætti tölvan ekki að kvarta framar.
Fyrir þá sem nota Mozilla Firefox 2.0
Þetta ætti ekki að öllu jöfnu að vera vandamál í Firefox en þú getur leyft síðuna í vafranum ef þú lendir í vandræðum.
1. Farðu í ‘Tools’ valmyndina og ‘Options’. Þar er flipi sem þú skalt smella á og heitir ‘Content’.
2. Hægra megin efst í glugganum er hnappur sem heitir ‘Exceptions’. Vinstra megin er hakað við ‘Block Pop-up windows’. Smelltu á ‘Exceptions’ hnappinn og skrifaðu inn í efstu línuna www.caa.is og veldu svo ‘Allow’ hnappinn.
3. Lokaðu glugganum.
Fyrir þá sem nota Opera 9.5
Við höfum ekki orðið vör við vandræði með Operu vafrann en ef eitthvað kemur upp þá gerið eftirfarandi:
1. Veldu ‘Tools’ valmyndina og svo ‘Preferences’.
2. Þá kemur upp þessi gluggi:

Veldu ‘Advanced’ flipann og svo ‘Content’ hægra megin í glugganum. Smelltu svo á ‘Magage Site Preferences...’ hnappinn.
3. Þá kemur upp gluggi sem er tómur en þar er hnappur sem heitir ‘Add’. Smelltu á hann.