Tilkynning um lengri afgreiðslutíma umsókna hjá stofnuninni
2.2.2010
Vegna takmörkunar á yfirvinnu starfsmanna Flugmálastjórnar Íslands mega viðskiptavinir stofnunarinnar búast við því að frá og með 1. febrúar 2010 verði sá afgreiðslutími sem líður frá því að tekið er við umsóknum um nýjar heimildir eða leyfi eða breytingar á núverandi heimildum eða leyfum mun lengri en áður. Þetta á sérstaklega við í þeim tilvikum sem um er að ræða sérfræðivinnu varðandi lofthæfi og flugrekstur.
Í ljósi þessa vill Flugmálastjórn hvetja viðskiptavini sína til að koma tímanlega með umsóknir og ganga úr skugga um að öll nauðsynleg skjöl fylgi með. Stofnunin mun leitast við að tilkynna, innan 10 daga frá móttöku gagna, hvenær vænta megi afgreiðslu á umsókninni.
Ennfremur er ljóst vegna takmörkunar á yfirvinnu að ekki verður unnt að hafa samband við sérfræðinga og eftirlitsmenn stofnunarinnar utan venjulegs dagvinnutíma í sama mæli og verið hefur.
Ef upp koma sérstakar og/eða brýnar aðstæður í flugrekstri sem kalla á á hraðari afgreiðslu umsókna geta viðskiptavinir lagt inn slíka beiðni til deildarstjóra eða framkvæmdastjóra flugöryggissviðs. Í þeim tilvikum verður metið hvort unnt sé að verða við slíkri beiðni án þess að það komi niður á afgreiðslu annarra verkefna. En um leið skal tekið fram að ef slík flýtimeðferð hefur aukakostnað í för með sér munu viðskiptavinir bera þann kostnað.
Flugmálastjórn gerir ekki ráð fyrir að takmörkun á yfirvinnu starfsmanna hafi áhrif á afgreiðslu skírteina einstaklinga annarra en Part66 skírteina.
Pétur K. Maack
Flugmálastjóri