Flugmálastjórn Íslands óskar eftir að ráða eftirlitsmann í lofthæfi- og skrásetningardeild
22.10.2009
Starfið felst einkum í eftirliti með lofthæfi loftfara og vottun og eftirliti með stjórnkerfum og fyrirtækjum sem annast viðhaldsmál.
Menntunar- og hæfnikröfur
Krafist er menntunar verkfræðings eða flugvéltæknis. Fimm ára reynsla af viðhaldi og/eða viðhaldstjórnun loftfara er æskileg, eða meistaragráða úr háskóla tengd lofthæfi loftfara. Ennfremur er þekking á hönnun loftfara og gögnum þeirra nauðsynleg og að viðkomandi þekki vel til úttekta og gæðakerfa. Viðkomandi þarf að hafa góð tök á íslensku og ensku.
Við leitum að starfsmanni sem hefur góða samskiptahæfileika, örugga og þægilega framkomu og mikinn áhuga á flugstarfsemi. Hann þarf að geta sýnt af sér frumkvæði í starfi, vera skipulagður í verkum sínum og unnið undir miklu álagi. Launakjör taka mið af viðeigandi kjarasamningum opinberra starfsmanna.
Í boði er áhugavert starf hjá Flugmálastjórn þar sem hæfileikar og frumkvæði fá notið sín. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði. Flugmálastjórn áskilur sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar um starfið gefa Ómar Þór Edvardsson deildarstjóri í lofthæfi- og skrásetningardeild (sími 569 4235 /omar@caa.is) og Einar Örn Héðinsson framkvæmdastjóri flugöryggissviðs (sími 569 4187 /einarh@caa.is)
Vinsamlegast sendið umsóknir til Flugmálastjórnar Íslands, Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík fyrir 7. nóvember n.k. merktar:
„Flugmálastjórn – umsókn um starf eftirlitsmanns“
Flugmálastjórn Íslands er ríkisstofnun með u.þ.b. 40 starfsmenn. Hlutverk Flugmálastjórnar er að fara með stjórnsýslu á sviði flugmála innanlands og á alþjóðavettvangi, hafa eftirlit með hvers konar flugstarfsemi á vegum íslenskra aðila til að tryggja öryggi í flugi innanlands og utan. Flugmálastjórn leggur áherslu á jafnan rétt kvenna og karla til starfa.