Alvarleg flugatvik og flugslys skal tilkynna strax til Rannsóknarnefndar flugslysa. Einnig ber að tilkynna atvikið til Flugmálastjórnar Íslands á þar til gerðu eyðublaði. Eyðublaðið er bæði á Word og PDF formi. Hægt er að fylla út Word skjalið beint í tölvu eða prenta það út og handskrifa á það. Velja skal eyðublað sem merkt er “GST 10” vilji menn hafa eyðublaðið á ensku en “GST-11” vilji menn eyðublaðið á íslensku. Síðan skal það sent sem viðhengi til Flugmálastjórnar Íslands á netfangið mandatory.reporting@caa.is. Sé eyðublaðið prentað út og útfyllt með penna þá skal faxa það í númer 588-4288 eða senda með bréf pósti til Vottunar-og greiningastofu Flugmálastjórnar Íslands.
Þau svæði sem boðið er uppá til útfyllingar eru eftirfarandi:
- 1. TEGUND ATVIKS: Setjið hak í þann reit sem skýrir hverskonar flugatvik þetta er.
- 2. Í UPPLÝSINGAR UM LOFTFAR eru skráðar upplýsingar er varða skráningarupplýsingar flugvélarinnar, dagsetingu atviks, SQAWK, hvar atvikið átti sér stað o.fl. SQAWK skiptir máli þegar t.d. lágmarks aðskilnaður er rofinn, eða þegar um annarskonar flugumferðaratvik og flugrastar atvik (votex) er að ræða.
- 3. Í TILGANGUR FLUGS línuna skal haka í viðeigandi reit. Það má haka í fleiri en einn reit þar sem t.d. leiguflug getur verið bæði verið farþegaflug og fraktflug.
- 4. Í FASI FLUGS þarf að krossa við í hvaða hluta flugsins atvikið átti sér stað. Þar fyrir neðan er skráður fjöldi farþega og áhafnar, eftir hverskonar flugreglum var flogið, flughraða (Hnútar, Indicated), flugtaks þyngd og bilanakóða (ATA) sé hann fyrir hendi.
- 5. Næst er það reiturinn AFLEI INGAR. Þar á að haka við og skrifa ef þarf, afleiðingar flugatviksins.
- 6. Í UPPSETNING VÉLAR VI ATVIK reitinn á að skrifa inn helstu stillingar á flugvélinni. þegar atvikið átti sér stað. Þessu er eðlilega sleppt ef um atvik á jörðu niðri er að ræða.
- 7. Í UMHVERFISÞÆTTIR ATVIKS reitinn þarf að fylla út upplýsingar um veðurskilyrði, brautarskilyrði og vindröst. Sleppið þessu ef um BILANIR OG SKEMMDIR ER KOMA Í LJÓS VIÐ SKOÐUN LOFTFARS er að ræða.
- 8. ÁREKSTUR VIÐ FUGLA reiturinn er fylltur út ef um árekstur við fugla er að ræða, setja má íslenska heitið á fuglinum.
- 9. Í BILANIR OG SKEMMDIR ER KOMA Í LJÓS VIÐ SKOÐUN LOFTFARS reitinn á að skrá skemmdir á loftfarinu sem finnast fyrir flug eða eftir flugatvikið.
- 10. FLUGRÖST reiturinn er fylltur út ef flugvélin lenti í flugröst í fluginu.
- 11. Í STUTT ALMENN LÝSING Á ATVIKINU skál skrá með eigin orðum greinagóða lýsingu á ;atvikinu og staðreyndum því tengdu. Ef eðli atviksins passar ekki inn í neinn reit á blaðinu þá skrifið lýsinguna hér. Notið stuttar setningar sem lýsa staðreyndum atviksins í tímaröð.
- 12. ACAS/TCAS viðvaranir á að skrá í NÁLGUNAR- FLUGUMFERÐAR OG LEIÐBEININGAR ÁREKSTARVARA reitinn.
Munið að því meiri upplýsingar sem þið gefið því betra. Hjálpið okkur að auka flugöryggið. Allar tilkynningar eru TRÚNAÐARMÁL.