Ómar Sveinsson, skjalastjóri
Beinn sími: 569 4109
fax: 562 3619
netfang: omarsv@caa.is
Skjalastjóri heldur utan um alla skjalastjórnun hjá Flugmálastjórn Íslands. Metnaður er lagður í að skjalamál stofnunarinnar séu til fyrirmyndar og erindum sé svarað tímanlega. Stofnunin notar GoPro hópvinnukerfi við vinnslu skjala og skráningu þeirra.
Afgreiðslutími bókasafns Flugmálastjórnar Íslands er virka daga frá kl. 9:00 til 16:00
Í bóka- og skjalasafni Flugmálastjórnar Íslands eru varðveitt öll gögn sem berast frá Samtökum evrópskra flugmálastjórna og Alþjóðaflugmálastofnuninni, svo sem viðaukar, skýrslur, bréf o.fl.
Gegnir heldur utan um bókakost stofnunarinnar. Gegnir er samskrá íslenskra bókasafna með það markmið að tryggja aðgang að safnakosti íslenskra bókasafna og þannig hámarka notagildi hans. Gegnir er rekinn af Landskerfi bókasafna hf í samvinnu við aðildarsöfn Gegnis.
Ómar Sveinsson er skjalastjóri Flugmálastjórnar Íslands. Hann lauk BA gráðu í bókasafns- og upplýsingafræðum frá Háskóla Íslands árið 1998 og MA gráðu í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla árið 2009. Ómar hefur starfað hjá Flugmálastjórn frá 2006.