Jafnvel þó að þú sért fatlaður/fötluð eða hreyfihamlaður/ hreyfihömluð, átt þú að geta notið þess að ferðast flugleiðis. Flest sú þjónusta, sem þú þarfnast, t.d. hjálp við að fara um borð í vélina, stendur þér gjaldfrjálst til boða. Samt er rétt, að fullvissa sig um við bókun á flugi, að engra gjalda sé krafist fyrir þjónustuna.

    Til að tryggja, að allt gangi vel og ferð þín verði eins áhyggjulaus og þægileg og kostur er á, skaltu fylgja þessum einföldu reglum:
  • 1. Safnaðu saman öllum upplýsingum, sem snerta ferðina, áður en þú gengur frá bókun.
  • 2. Vertu rausær varðandi sérþarfir þínar, sérstaklega ef þú ert ekki fær um að ganga lengri vegalengdir án hjálpar. Það getur verið ansi langt frá innritunarborði að útgönguhliði flugvélarinnar.
  • 3. Veldu það flugfélag eða þá ferðaskrifstofu, sem er best í stakk búin til að mæta þörfum þínum.
  • 4. Hafðu samband við flugfélagið/ferðaskrifstofuna, til að ganga úr skugga um, að starfsfólkið þekki, skilji og sé hæft til að veita þér þá sérþjónustu, sem þú þarfnast.
  • 5. Það er ekki víst, að þú getir alltaf gengið beint að þjónustunni; þess vegna er best að panta hana fyrirfram.
  • 6. Starfsfólkið þekkir ekki endilega bestu aðferðina við að lyfta þér upp eða hreyfa - ef það spyr ekki, skaltu útskýra það sjálf(ur)!

Þó að flugfélagið hafi skyldur gagnvart þér sem farþega, verðið þið að taka höndum saman, um að ferð þín verði eins þægileg og áreynslulaus og mögulegt er. Skv. alþjóðareglum eru bætur vegna farangurs (þ.á.m. hreyfi- eða stoðtæki), sem týnst hefur eða skemmst, reiknaðar skv. þyngd en ekki skv. verðmæti. Athugaðu því, áður en þú leggur í ferðina, hvort ferðatrygging þín nái einnig til hreyfi- eða stoðtækja þinna. Þú gætir þurft að kaupa aukatryggingu.
Aflaðu þér þeirra upplýsinga, sem þú þarft.