Ef flugfélagið veitir þér alla nauðsynlega séraðstoð skv. fyrirframgerðri pöntun, ætti flugferð þín að vera eins þægileg og hjá öllum öðrum farþegum. Ef eitthvað skyldi samt sem áður fara úrskeiðis og vandamál koma upp, ættir þú að tilkynna um það.
Kvörtunum á fyrst og fremst að beina til yfirmanns farþegaþjónustu viðkomandi flugfélags og/eða rekstraraðila flugvallarins. Ef þú sættir þig ekki við svarið frá þessum aðilum, getur þú snúið þér til Flugmálastjórnar Íslands sem hefur verið falið eftirlit samkvæmt reglugerðinni.
Eftirlit Flugmálastjórnar Íslands hefur ekki áhrif á rétt fatlaðra einstaklinga til að leita réttar síns hjá dómstólum samkvæmt landslögum.