Á grundvelli laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum, alþjóðlegra samninga kennda við Varsjá frá 1929 auk samningsauka, viðbótarbókana og Montreal-samningsins frá 1999, ber flytjandi ábyrgð á tjóni sem verður af völdum tafa í flutningi á farþegum, farangri og farmi. Þó verður flytjandi ekki talinn bera ábyrgð á tjóni sem orsakast af töfum í flutningi geti hann sannað að hann og starfsmenn hans og umboðsmenn hafi viðhaft þær aðgerðir sem sanngjarnt getur talist að viðhafðar séu eða að ógerlegt hafi verið að framkvæma slíkar aðgerðir.
Ábyrgð flytjanda getur fallið niður að hluta eða öllu leyti skapist óviðráðanlegar aðstæður sem ekki er mögulegt að afstýra, jafnvel þótt gerðar hafi verið allar nauðsynlegar ráðstafanir. T.d. geta slíkar aðstæður skapast af völdum ótryggs stjórnmálasambands, veðurskilyrða sem samræmast ekki kröfum sem gerðar eru til viðkomandi flugs, öryggisáhættu, verkfalla sem geta haft áhrif á starfsemi flugrekanda, ákvarðana sem teknar eru af flugumferðarstjórn tengd tilteknu loftfari eða loftförum sem er þess valdandi að flugi er aflýst.
Þegar flugrekandi með útgefið flugrekstrarleyfi innan EES ber ábyrgð á töf hvar sem er í heiminum getur farþegi átt kröfu um bætur fyrir sérhvert tjón er leiðir af töf. Krafa farþega getur verið á félagið sem samið var við um flutninginn eða félagið sem sá um flugið, ef það er annað. Ábyrgð flytjanda á tjóni er orsakast af töfum í flutningi farþega er takmörkuð við 4.150 SDR (sérstök dráttarréttindi) vegna hvers farþega, nema sannað sé að tjóni hafi verið valdið af stórfelldu gáleysi eða ásetningi.
Með gildistöku reglugerðar nr. 574/2005 tóku eftirfarandi reglur gildi um seinkanir:
- brottför flugs frá EES-ríki (óháð flugrekanda) og
- í flugi til EES-ríkis enda sé flugrekandi sem annast flugið með útgefið flugrekstrarleyfi innan EES.
Ef flugrekandi hefur ástæðu til að ætla að flugi seinki fram yfir áætlaðan brottfarartíma:
- Um 2 klst. eða lengur, fyrir flug sem er 1.500 km eða styttra,
- Um 3 klst. eða lengur, fyrir flug innan EES sem eru lengri en 1.500 km og fyrir önnur flug á bilinu 1.500 og 3.500 km, eða
- Um 4 klst. eða lengur fyrir lengra flug en 3.500 km utan EES,
þá skal flugrekandi bjóða farþegum máltíðir og hressingu í samræmi við lengd tafar, hótelgistingu þegar þarf (einnig flutning milli flugvalla og gistiaðstöðu) og samskiptaaðstöðu farþegum að kostnaðarlausu.
Þegar töfin er 5 klst. eða lengri, verður flugrekandinn einnig að bjóðast til að endurgreiða farmiða fyrir þann hluta ferðarinnar sem ekki var farinn og fyrir einn eða fleiri hluta ferðarinnar sem farnir hafa verið ef flugið þjónar engum tilgangi lengur með hliðsjón af upprunalegri ferðaáætlun (með ókeypis flugi til upphaflegs brottfararstaðar farþega, þar sem það á við).
Farþegar áttu ekki rétt til skaðabóta í tilviki seinkunar samkvæmt 6. gr. viðauka við rg. 574/2005 en Evrópudómstólinn komst að þeirri niðurstöðu þann 19. nóvember 2009, í sameinuðum málum C-402/07 og C-432/07, að: flugfarþegi sem lendir í seinkun flugs sbr. 6 gr. eigi sama rétt til bóta skv. 7. gr. og farþegi sem lendir í aflýsingu flugs sbr. 5. gr. Einnig kemst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að ekki sé hægt að telja það óviðráðanlegar aðstæður ef vél tefst vegna bilana sem þekktar voru fyrirfram.
Sjá frekar
X. kafli laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum
Reglugerð nr. 574/2005