Sú framkvæmd flugfélaga að yfirbóka flug getur leitt til þess að synja þurfi farþegum um far sem þó eiga útgefin og staðfestan farmiða með fluginu.  Með gildistöku reglugerðar nr. 574/2005 tóku eftirfarandi reglur gildi þegar farþega er neitað um far:

  • Þegar brottför flugs frá EES-ríki (óháð flugrekanda) og
  • Í flugi til EES-ríkis enda sé flugrekandi sem annast flugið með útgefið flugrekstrarleyfi innan EES.
Ath. að reglur gilda ekki þegar farþega er neitað um far á grundvelli réttmætra ástæðna, t.d. heilbrigðis- eða öryggisástæðum eða ef erðaskilríki eru ófullnægjandi.

Flugrekanda ber að leita eftir sjálfboðaliðum sem reiðubúnir eru til láta eftir sæti sín gegn bótum skv. skilyrðum sem flugrekandi og farþegi koma sér saman um.  Slíkir farþegar eiga jafnframt rétt til aðstoðar af hálfu flugrekanda sem felst m.a. í:

  • Fá farmiða sinn fyrir þann hluta ferðarinnar sem ekki var farinn og fyrir einn eða fleiri hluta ferðarinnar sem farnir hafa verið ef flugið þjónar engum tilgangi lengur með hliðsjón af upprunalegri ferðaáætlun, og
  • Fá flug til baka til fyrsta brottfararstaðar eins fljótt og auðið er (ef við á) eða,
  • Breyta flugleið, með sambærilegum flutningsskilyrðum til lokaákvörðunarstaðar.

Farþega sem synað er um far (í þeim tilvikum sem sjálfboðaliðar eru ekki nægilega margir) skulu greiddar skaðabætur þegar í stað (sjá lista hér að neðan) og skulu njóta þeirrar aðstoðar sem getið er hér að ofan, auk þess að vera boðin máltíð og hressing í samræmi við lengd tafar og samskiptaaðstöðu farþega að kostnaðarlausu.
Ef flugleið farþega er breytt þannig að áætlaður brottfarartími nýja flugsins er a.m.k. einum degi eftir áætlaða brottför flugsins sem þeim var synjað um skal flugrekandi einnig bjóða hótelgistingu og flutning á milli flugvallar og gistiaðstöðu.

Skaðabætur:
(a) 250 evrur fyrir öll flug sem eru 1.500 km eða styttri,
(b) 400 evrur fyrir öll flug innan EES sem eru lengri en 1.500 km og fyrir öll önnur flug á bilinu milli, 1.500 og 3.500 km,
(c) 600 evrur fyrir öll flug lengri en 3.500 km. utan EES.

Flugrekanda er heimilt að lækka skaðabætur til farþega um 50% vegna breytinga á ferðafyrirkomulagi farþega sé um óverulega töf (innan við 1 klst. - 4 klst. eftir flugfjarlægð áfangastaðar) að ræða.  (Sjá 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar)

Skaðabætur skulu greiddar í reiðufé, með rafrænni yfirfærslu eða í gíró eða bankaávísun, eða ef farþegi samþykkir (skriflega) í ferðaávísun og eða með annarir þjónustu.

Dæmi um flug undir 1.500 km eða styttra: Allt innanlandsflug á Íslandi.  Flug frá REK/KEF til Færeyja, Kulusuk, Narsassuaq, Glasgow.

Dæmi um flug milli 1.500 km og 3.500 km: Flug frá REK/KEF til Osló, Stokkhólms, Helsinki, Kaupmannahöfn, Hamborg, Frankfurt, Amsterdam, Luxembourg, London og Halifax.

Dæmi um flug yfir 3.500 km: Frá REK/KEF til Baltimore, Minneapolis, New York, Boston, Orlando og San Francisco.

Sjá nánar 4. gr., 7., gr. 8. gr. og 9. gr. reglugerðarinnar.