Með gildistöku reglugerðar nr. 574/2005 tóku eftirfarandi reglur gildi þegar flugi er aflýst:
Ath. þegar pakkaferð er felld niður af öðrum ástæðum en þeim að flug er aflýst gilda eftirfarandi reglur ekki.
Farþega skal boðin aðstoð af hendi flugrekanda til að:
-
Fá farmiða sinn endurgreiddan fyrir þann hluta ferðarinnar sem ekki var farinn og fyrir einn eða fleiri hluta ferðarinnar sem farnir hafa verið ef flugið þjónar engum tilgangi lengur með hliðsjón af upprunalegri ferða áætlun, og
Fá flug til baka til fyrsta brottfararstaðar eins fljótt og auðið er (ef við á), eða
-
Breyta flugleið, með sambærilegum flutningsskilyrðum til lokaákvörðunarstaðar.
Flugrekandi skal ennfremur bjóða farþegum máltíðir og hressingu og samskiptaaðstöðu farþegum að kostnaðarlausu. Ef flugleið farþega er breytt þannig að áætlaður brottfarartími nýja flugsins er a.m.k. einum degi eftir áætlaða brottför flugsins sem var aflýst skal flugrekandi einnig bjóða hótelgisitngu og flutning á milli flugvallar og gistiaðstöðu.
Farþegar eiga einnig rétt á skaðabótum frá flugrekanda, nema
Skaðabætur:
(a) 250 evrur fyrir öll flug sem eru 1.500 km eða styttri,
(b) 400 evrur fyrir öll flug innan EES sem eru lengri en 1.500 km og fyrir öll önnur flug á bilinu milli, 1.500 og 3.500 km,
(c) 600 evrur fyrir öll flug sem fall ekki undir a- og b-lið hér að framan.
Dæmi um flug undir 1.500 km eða styttra: Allt innanlandsflug á Íslandi. Flug frá REK/KEF til Færeyja, Kulusuk, Narsassuaq, Glasgow.
Dæmi um flug milli 1.500 km og 3.500 km: Flug frá REK/KEF til Osló, Stokkhólms, Helsinki, Kaupmannahöfn, Hamborg, Frankfurt, Amsterdam, Luxembourg, London og Halifax.
Dæmi um flug yfir 3.500 km: Frá REK/KEF til Baltimore, Minneapolis, New York, Boston, Orlando og San Francisco.
Ábyrgð flugrekanda getur fallið niður að hluta eða öllu leyti skapist "óviðráðanlegar aðstæður" sem ekki er mögulegt að afstýra, jafnvel þótt gerðar hafi verið allar nauðsynlegar ráðstafanir. T.d. geta slíkar aðstæður skapast af völdum ótryggs stjórnmálasambands, veðurskilyrða sem samræmast ekki kröfum sem gerðar eru til viðkomandi flugs, öryggisáhættu, verkfalla sem geta haft áhrif á starfsemi flugrekanda, ákvarðana sem teknar eru af flugumferðarstjórn tengd tilteknu loftfari eða loftförum sem er þess valdandi að flugi er aflýst.
Evrópudómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu, í máli C-549/07 Friederike Wallentin-Hermann v. Alitalia - Linee Aeree Italiane SpA, að ekki sé hægt að túlka tæknilega bilun sem "óviðráðanlegar aðstæður" ef bilunin er fyrirfram þekkt.