Farþegar mega ekki flytja með sér eftirtalda hluti inn á haftasvæði flugverndar og í farþegaklefa loftfars en ekki er um tæmandi talningu að ræða:
a) Byssur, skotvopn og vopn.
Sérhver hlutur sem skot getur eða virðist geta hlaupið úr eða sem getur eða virðist geta valdið skaða, þ.m.t.:
- öll skotvopn (skammbyssur, rifflar, haglabyssur o.s.frv.),
- eftirlíkingar eða stælingar skotvopna,
- íhlutir skotvopna (undanskilin eru sjónaukamið og önnur mið),
- loftbyssur, -rifflar og -haglabyssur,
- merkibyssur,
- rásbyssur,
- leikjabyssur af öllum gerðum,
- kúlubyssur (ball bearing guns),
- bolta- og naglabyssur til nota í iðnaði,
- krossbogar,
- teygjubyssur og slöngvur,
- skutul- eða spjótbyssur,
- tæki til að aflífa dýr/pinnabyssur,
- rafmagnsvopn af öllum gerðum, einnig í byssulíki (taser),
- kveikjarar í byssulíki.
b) Oddhvöss eða beitt vopn og hlutir.
Oddhvassir eða beittir hlutir sem geta valdið skaða, þ.m.t.:
- axir,
- krókar, mannbroddar,
- örvar og kastpílur,
- skutlar og spjót,
- ísaxir og stingar,
- skautar,
- láshnífar eða fjaðurhnífar, óháð lengd blaðs,
- hnífar (úr málmi eða öðru efni sem er nógu stíft til að hægt sé að nota það sem hugsanlegt vopn, einnig hnífar sem eru notaðir við siða- og trúarathafnir), (íslensk yfirvöld leyfa ekki neina oddhvassa eða beitta hnífa, aðeins rúnnaða, bitlausa smjörhnífa),
- kjötaxir,
- sveðjur,
- rakhnífar og rakblöð (undanskilin eru rakblöð í skiptihylkjum),
- höggsverð, sverð og korðar,
- skurðhnífar,
- skæri, með lengra en 6 cm blað,
- (íslensk yfirvöld leyfa ekki nein oddhvöss, beitt skæri),
- skíða- og göngustafir,
- kaststjörnur,
- verkfæri iðnaðarmanna sem hugsanlega má nota sem oddhvasst eða beitt vopn, t.d. borvélar, lausir borar, pappahnífar, hnífar til atvinnu, allar sagir, skrúfjárn, kúbein, hamrar, tangir, skiptilyklar/skrúflyklar, blússlampar.
c) Bitlaus áhöld og tól.
Bitlaus áhöld sem geta valdið skaða, þ.m.t.:
- hafnaboltakylfur,
- kylfur og stafir af öllum gerðum, stífir eða sveigjanlegir,
- krikketkylfur,
- golfkylfur,
- ísknattleikskylfur,
- baglar („Lacrosse“-kylfur),
- kajak- og kanóárar,
- hjólabretti,
- kjuðar fyrir ballskák,veiðistangir,
- búnaður fyrir sjálfsvarnaríþróttir, svo sem hnúajárn, rotkylfur og aðrar kylfur, þreskijárn o.s.frv.
d) Sprengiefni og eldfim efni.
Sérhver sprengiefni eða eldfim efni sem eru hættuleg heilsu farþega og áhafnar eða vernd/öryggi loftfars eða eigna, þ.m.t.:
- skotfæri,
- sprengihettur,
- hvellhettur og sprengiþræðir,
- sprengiefni og sprengibúnaður,
- eftirlíkingar og stælingar sprengiefna og sprengibúnaðar,
- jarðsprengjur og aðrar sprengifimar hernaðarbirgðir,
- handsprengjur af öllum gerðum,
- gas og gaskútar t.d. bútan, própan, kolvetnisgas (acetylene) og súrefni – í stórum umbúðum,
- skoteldar, blys af öllum gerðum og annar skotelda- og hvellbúnaður, þ.m.t. samkvæmis- og leikjasprengjur,
- eldspýtur, aðrar en venjulegar,
- reykhylki og reykdósir,
- fljótandi eldsneyti, t.d. bensín, díeselolía, kveikjaralögur, alkóhól og etanól,
- málning í úðabrúsum,
- terpentína og þynnir,
- áfengir drykkir með meira en 70% vínanda miðað við rúmmál
e) Íðefni og eiturefni.
Öll íðefni og eiturefni sem eru hættuleg heilsu farþega og áhafnar eða flugvernd/öryggi loftfars eða eigna, þ.m.t.:
- sýrur og lútarefni, t.d. vökvafylltar rafhlöður,
- tærandi og bleikiefni, t.d. kvikasilfur og klór,
- lamandi úðaefni, t.d. úðavopn (Mace), piparúði og táragas,
- geislavirk efni, þ.m.t. samsætur (ísótópar) til nota við lækningar og sem verslunarvara, eitur,
- smitefni eða hættuleg lífefni, t.d. smitað blóð, bakteríur og veirur,
- sjálfsíkveikjandi og eldfim efni,
- slökkvitæki.
f) Vökvi.
- 1. Vökvi, nema hann sé í umbúðum sem að hámarki rúmar 100 ml. þess eða jafngildi og sé í einum gagnsæjum plastpoka sem hægt er að loka (með rennilás eða zip-lock eða sambærilegt) sem að hámarki rúmar 1 líter. Innihald plastpokans skal rúmast þægilega og pokinn skal lokast alveg. Vökvi tekur til gels, mauks, krems, blöndu, innihalds þrýstiumbúða, s.s. tannkrems, hárgels, drykkja, súpu, síróps, ilmvatns, raksápu, úðaefni og efna að sambærilegum þéttleika.
- 2. Heimilt er að veita undanþágu frá 1. lið f-liðar enda sé vökvi:
- i) Til notkunar í ferð og sé nauðsynlegur vegna læknisfræðilegs tilgangs eða vegna sérstaks mataræðis, þ.m.t. barnamatur. Sé þess krafist, skal farþegi færa sönnur á réttu innihaldi hins undanþegna vökva; eða
- ii) aflað á flugsvæði fyrir innan þann stað þar sem eftirlit með brottfaraspjöldum fer fram, í verslunum sem starfa samkvæmt samþykktum flugverndarráðstöfunum sem hluti af flugverndaráætlun viðkomandi flugvallar, og með því skilyrði að vökvanum sé pakkað í poka sem sé innsiglaður og framvísað sé fullnægjandi sönnun þess að vökvinn var keyptur á viðkomandi flugvelli sama dag; eða
- iii) aflað á haftasvæði flugverndar í verslunum sem starfa samkvæmt samþykktum flugverndarráðstöfunum sem hluti af flugverndaráætlun viðkomandi flugvallar, eða
- iv) aflað á flugvelli innan ríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu, EFTA með því skilyrði að vökvi er pakkaður í poka sem sé bæði innsiglaður og framvísað sé fullnægjandi sönnun þess að vökvi var keyptur innan haftasvæðis flugverndar á viðkomandi flugvelli sama dag; eða
- v) aflað um borð í loftfari sem starfrækt er af flugrekanda innan Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu, EFTA með því skilyrði að vökvi sé pakkaður í poka sem sé bæði innsiglaður og framvísað sé fullnægjandi sönnun þess að vökvi var keyptur um borð því loftfari sama dag.
g) Handfarangur.
Eining handfarangurs stærri en 56 sm x 45 sm x 25 sm. Leyfileg hámarksmál taka til handfanga, óla, vasa, hjóla eða annars framstæðs hluta á farangri, þ.m.t innihald tösku. Heimilt er að undanþiggja handfarangur í yfirstærð sem inniheldur hlut eða hluti sem eru of stórir til að passa innan leyfilegra hámarksmála einingar handfarangurs og eru verðmæt eða viðkvæm. Slíkan handfarangur skal framvísa til samþykkis við innritun og við öryggishlið til skoðunar. Handfarangur í yfirstærð skal vera skimaður a.m.k. með handleit.