Hvar kaupi ég gegnsæjan eins (1) lítra poka með plastarennilás?

    Þessa poka er hægt að fá í helstu matvöruverslunum á Íslandi

Er mikilvægt að hægt sé að loka plastpokanum með plastrennilás? (eða sambærilegum lokunarbúnaði?

Já. Allar 100ml vökvaumbúðir sem fara í þennan eins (1) lítra poka verða að rúmast þægilega fyrir til að auðvelda skimun.

Hvað gerist ef bannaður hlutur finnst í handfarangri?

Ef bannaðir hlutur (t.d. oddhvass hlutur, vopn, vökvar í stærri umbúðum en 100 ml) finnst við öryggisleit er farþega óheimilt að fara með slíkan hlut inn fyrir öryggishlið.

Eftir að ég er kominn að öryggishliði, get ég komið hlutum sem eru bannaðir í handfarangri í innritaðan farangur?

Nei. Sá farangur er ekki lengur aðgengilegur farþegum eftir að hann hefur verið innritaður.

Er aðstaða til að geyma bannaða hluti í flugstöðvum?

Nei. Aðstaða til að geyma bannaða hluti er ekki fyrir hendi í flugstöðvum á Íslandi.

Hvað er vökvi?

Allur vökvi, gel, krem, smyrsl, úðaefni, o.s.frv. hvort sem er í flöskum, þrýstibrúsum, túpum eða öðrum umbúðum. Algengir hlutir, sem fólk hefur með sér og flokkast undir vökva, eru: gos, áfengi, ilmvatn, rakakrem, tannkrem, varagloss, hárlakk, sápur, sjampó svo eitthvað sé nefnt.

Get ég haft með mér lyf í vökvaformi?

Farþega er leyfilegt að hafa með sér lyf merkt notanda í magni sem dugir meðan á flugferð stendur. Farþegi gæti þurft að færa sönnur á innihald óski öryggisverðir eftir því.

Hvað með lyf í töfluformi?

Farþega er eftir sem áður heimilt að hafa með sér lyf í töfluformi svo lengi sem öryggisverðir telji enga ógn stafa af þeim.

Hvað með sérstakt mataræði samkvæmt læknisráði ?

Farþega er heimilt að hafa með sér matvæli vegna sérstaks mataræðis í magni sem dugir á meðan flugferð stendur. Farþegi gæti þurft að færa sönnur á innihald óski öryggisverðir eftir því.

Má ferðast með barnamat?

Farþega er heimilt að hafa með sér barnamat handa ungbarni í magni sem dugir á meðan flugferð stendur. Farþegi gæti þurft að færa sönnur á innihald óski öryggisverðir eftir því.

Undir hvað flokkast varalitur?

Varalitur flokkast ekki undir það að vera vökvi. Varagloss telst til vökva.

Má ég áfram ferðast með almennar snyrtivörur?

Margar snyrtivörur flokkast sem vökvi og best fyrir komið í innrituðum farangri. Snyrtivörur sem flokkast sem vökvi eru fluttar í handfarangri verða þær að rúmast í umræddan eins (1) lítra gegnsæja poka.

Hvað er handfarangur?

Farangur sem farþega er heimilt að bera um borð í flugvélar.

Hvað er innritaður farangur?

Farangur sem er innritaður hjá flugrekenda og fer í lest flugvélar.

Hvað verð ég að gera áður en ég mæti til innritunar í brottfararsal flugstöðvar?

Þegar pakkað er niður fyrir ferðalag ætti að hafa í huga að snyrtitöskum, tannkremi, hárvörum, ilmvatnsglösum, kremi, rakspíra, svitalyktareyði, sápum, raksápu og öðrum sambærilegum hlutum er best fyrir komið í innrituðum farangri. Mundu að pakka einnig hlutum í innritunarfarangur sem ekki eru leyfðir í handfarangri. Hlutir eins og skæri, naglaþjalir og vasahnífar verða að fara í innritaðan farangur. Ef slíkir hlutir finnast í handfarangri við öryggisskoðun er farþeganum undantekningarlaust meinað að halda áfram með hlutinn í gegnum öryggishlið.

Má ég ferðast með vökva í handfarangri (drykki, áfengi o.s.frv.) sem ég kaupi eftir að hafa farið í gegnum öryggisskoðun á Íslandi?

Farþegar geta eftir sem áður keypt allan vökva og aðrar vörur innan biðsvæðis flugstöðva Evrópska Efnahagssvæðisins, en vörur sem seldar eru á því svæði hafa sætt sérstakri skoðun.

Hvað verð ég að hafa í huga ef ég flýg beint á áfangastað og held ekki áfram í tengiflug?

Ef flogið er beint á áfangastað frá Íslandi má vera með allan vökva í handfarangri sem keyptur er á biðsvæðinu.

Hvað verð ég að hafa í huga ef ég fer í tengiflug í Norður-Ameríku (Bandaríkjunum/Kanada)?

Ef farið er í tengiflug í Norður-Ameríku (Bandaríkjunum/Kanada) verður að setja vökva, sem keyptur er í verslun eftir að farið er í gegnum öryggisskoðun eða um borð í flugvél, í innritaðan farangur áður en haldið er áfram í tengiflug. Tækifæri til þess gefst eftir að farþegar hafa farið í gegnum tollskoðun við komuna í flugstöð í Norður-Ameríku (Bandaríkjunum/Kanada).

Má ég ferðast með vökva í handfarangri sem ég kaupi áður en ég fer í innritun fyrir flug frá Norður-Ameríku (Bandaríkjnum/Kanada) til Íslands?

Vökva, sem keyptur er áður en farþegi innritar sig í flug, skal koma fyrir í innritunarfarangri.

Má ég ferðast með vökva í handfarangri sem ég kaupi í verslun eftir að ég hef farið í gegnum öryggisskoðun í Norður-Ameríku (Bandaríkjunum/Kanada)?

Ekki er heimilt að fara með vökva í handfarangri sem keyptur er í verslunum eftir að farið er í gegnum öryggisskoðun í Norður-Ameríku (Bandaríkjunum/Kanada) og öðrum ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins inn í flugstöð á Íslandi jafnvel þótt hann sé í innsigluðum umbúðum.

Get ég ferðast með vökva í handfarangri sem keyptur er um borð í flugvél?

Heimilt er að fara með vökva sem keyptur er um borð í flugvél skráðri í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins inn í flugstöð á Íslandi ef varan er í innsigluðum poka. Farþegi verður einnig að geta framvísað kvittun sem staðfestir innihald pokans og kaupdagsetningu sé þess óskað af öryggisvörðum.