Bannlisti“ Evrópubandalagsins

Þann 22. mars 2006 tók í gildi  reglugerð nr. 474/2006 varðandi flugfélög á svokölluðum bannlista. Á listanum eru flugfélög sem ekki hafa leyfi til að fljúga frá þriðja ríki til eða innan Evrópubandalagsins.

Bannlistinn var síðast uppfærður þann  21. nóvemberl 2011 sbr. EB rg. 1197/2011   og hefur enn ekki verið þýddur.

Reglugerð 474/2006 var innleidd á Íslandi með rg. nr. 277/2008 sbr. 396/2008, sbr. 826/2008, sbr. 1185/2008, sbr. 464/2009 , sbr.  181/2010, sbr. 675/2010, sbr. 202/2011,  sbr. 424/2011, sbr. 390/2011 EB, sbr. 1074/2011  um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.

Um bannlista Evrópusambandsins

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins og Evrópuþingið hafa tekið saman „svartan lista“ um þá flugrekendur sem ekki fullnægja alþjóðlegum öryggiskröfum.

Evrópsk flugmálayfirvöld gera úttektir á öryggi flugs frá þriðja ríki með óreglulegum skoðunum og færa niðurstöðurnar inn í Samevrópskan gagnagrunn. Flugmálayfirvöld aðildarríkjanna tilkynna einnig um flugrekendur sem ekki eru taldir uppfylla settar flugöryggiskröfur, til Evrópusambandsins.

Bæði einstakir flugrekendur sem og einstök lönd geta verið sett á listann. Ef flugmálayfirvöld í tilteknu landi standa ekki undir kröfum, geta allir flugrekendur þess lands verið útilokaðir frá flugvöllum aðildarríkja Evrópusambandsins.

Þó svo flug sé öruggasti ferðamátinn, mun tilvist listans beina spjótum að mikilvægi þess að halda uppi alþjóðlegum kröfum  flugöryggis.

Listinn er uppfærður a.m.k. þriðja hvern mánuð af framkvæmdarstjórninni. Komi upp alvarlegt tilvik er snertir öryggi, geta flugmálayfirvöld einstakra landa gefið út alþjólegt bann og óskað eftir því við Evrópusambandið að flugrekandi verði settur á listann.

Ef flugrekandi óskar eftir því að vera tekinn af listanum, kemur hann sér í samband við einstök flugmálayfirvöld eða framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins. Sérfræðingar Evrópusambandsins munu þá fara ítarlega í stöðu öryggismála hjá flugrekandanum áður en ákvörðun er tekin um hvort flugrekandinn skuli fjarlægður af listanum.

  • Ófullnægjandi viðhald flugvéla.
  • Flugrekandi hefur ekki burði í að gera þær umbætur sem  þörf er á.
  • Flugmálayfirvöld ríkis þar sem flugrekandi er skráður, hafa ekki næga burði til að takast á við það ástand sem skapast hefur.

 

Einnig má finna upplýsingar um bannlistann á heimasíðu EU