Eyðublöð

Einar Örn Héðinsson, framkvæmdastjóri flugöryggissviðs og deildarstjóri þjálfunar- og skírteinadeildar

Einar Örn Héðinsson, framkvæmdastjóri flugöryggissviðs
og deildarstjóri þjálfunar- og skírteinadeildar
Beinn sími 569 4187
Fax 562 3619
Netfang einarh@caa.is





Deildin hefur í meginatriðum umsjón með útgáfu allra skírteina einstaklinga sem varða réttindamál í flugi. Þá hefur deildin umsjón með þeirri starfsemi á Íslandi sem nauðsynleg er til að afla slíkra réttinda, þ.m.t. bókleg og verkleg kennsla ásamt prófum.
Starfsemi deildarinnar byggist einkum á reglugerðum um skírteini (sjá lög og reglur) sem innihelda m.a. kröfur JAR-FCL 1, 2 og 3, auk reglugerðar um flugskóla nr. 692/1999. Starfsemin er einkum fjórþætt.

  • Deildin fylgist með þekkingu og færni flugliða og sér um útgáfu og endurútgáfa skírteina og staðfestir að flugliðar hafi öðlast þá þekkingu og færni sem tilskilin er fyrir tiltekin réttindi og að þeir hafi viðhaldið þeirri þekkingu og færni.

  • Deildin gefur út heimildir til að mennta og þjálfa flugmenn og fylgist með þeirri starfsemi t.d. varðandi flugskóla sem kenna til einkaflugs- og atvinnuflugsprófs ásamt ýmsum viðbótaráritunum.

  • Deildin annast öll bókleg og verkleg próf til einka- og atvinnuflugs og ber einnig ábyrgð á prófum til hvers konar tegundaráritunar og annast prófdómarar Flugmálstjórnar þau.

  • Starfsemi deildarinnar felst einnig í því að veita heimild til handa fluglæknum til að annast skoðanir flugliða og að fylgjast með þeirri starfsemi. Farið er yfir allar heilbrigðisskoðanir og ber heilbrigðisskor ábyrgð á stjórnun á útgáfu heilbrigðisvottorða.

Starfsemi skírteinadeildar byggir mikið á starfi sérfræðinga í hlutastarfi. Með þessu móti fæst aðgangur að sérþekkingu á afmörkuðum sviðum. Þessi sérþekking er nauðsynleg til að geta veitt heimildir, annast próf og fylgjast með menntunar- og þjálfunarstarfsemi.

Daglega berst fjöldi fyrirspurna einkum varðandi nám og réttindi. Það er stefna flugöryggissviðs að útgáfur, endurútgáfur og áritanir í skírteini séu afgreiddar rösklega og að útgáfur séu tilbúnar á þriðja vinnudegi eftir að umsókn hefur verið lögð inn enda hafi öll nauðsynleg gögn borist.