Hvenær tek ég færnipróf og hvenær hæfnipróf?
Umsækjendur um flugmannsskírteini þurfa að taka færnipróf hjá prófdómara Flugmálastjórnar þegar bóklegu námi, bóklegum prófum og verklegri þjálfun er lokið.
Flugprófum má skipta í tvo flokka:
- Færnipróf fyrir útgáfu skírteina og áritana og ef við á til að endurnýja útrunnar áritanir.
- Hæfnipróf til að framlengja áritanir í gildi og ef við á til að endurnýja þær.
Hvert er markmiðið með færniprófi?
Það eru tvenns konar markmið með færniprófi:
- Til að unnt sé að staðfesta að umsækjandi um prófið sé fær um að stjórna loftfari af fyllsta öryggi, þannig að hvorki honum sjálfum, farþegum hans eða annarri flugumferð sé hætta búin.
- Til að unnt sé að fá yfirsýn yfir gæði flugþjálfunar flugskólanna með því að athuga árangur í flugprófum til þess unnt sé að breyta kröfum og lagfæra bresti sem ef til vill koma í ljós.
Hvernig skrái ég mig í flugpróf?
Þegar tilskyldri kennslu í flugskóla er lokið og nemandinn metinn hæfur í próf þá er sótt um flugpróf hjá skírteinadeild flugöryggissviðs. Þar er gengið úr skugga um hvort umsækjandi um flugpróf uppfylli allar kröfur sem gerðar eru og reynt er að finna próftíma sem hentar bæði nemanda, skóla og prófdómara.
Dæma allir flugprófdómarar eins?
Allir flugprófdómarar eru atvinnuflugmenn með mikla reynslu og vita vel til hvers er ætlast af þeim. Þeir eru allir samhæfðir og fylgja sömu reglum og kröfum og nákvæmum lýsingum á því hvernig og í hverju skuli prófa.
Hvernig er færniprófið byggt upp?
Hvers er vænst af mér sem nemanda og hvaða kröfur eru gerðar til mín?
Þegar nemandinn kemur í prófið hefur hann með sér nauðsynleg gögn.
Þess er vænst að hann hafi náð þeirri færni að geta án hjálpar og af fyllsta öryggi framkvæmt öll þau atriði sem nauðsynleg eru til að ljúka fluginu á öruggan hátt.
Nemandinn á að framkvæma allt sem flugstjóra ber að gera og hafa frumkvæði og taka ákvarðanir svo sem hann bæri ábyrgð flugstjóra. Þess er vænst að flugneminn segi prófdómaranum hvað hann ætli að gera og hvers vegna. Það getur komið í veg fyrir misskilning sem e.t.v gæti orðið til þess að prófdómarinn felli rangan dóm.
Nemandinn skal sýna að hann geti:
- starfrækt loftfarið innan þeirra takmarkana sem því er sett
- lokið öllum flugbrögðum af lipurð og nákvæmni
- viðhaft góða dómgreind og flugmennsku
- beitt þekkingu á flugleiðsögu, ef við á og
- alltaf haldið góðri stjórn á loftfarinu með þeim hætti að aldrei verði efast um að aðgerð eða flugbragð beri góðan árangur
Það er gert ráð fyrir því að viss misstök verði til þess að nemandinn falli á prófinu, en yfirleitt ræður heildarútkoma úrslitum. Þess vegna er mikilvægt að vita að það skiptir ekki öllu máli þó að mistök séu gerð í verklagi eða ekki takist að ljúka aðgerð sem byrjað er á. Oft er mikilvægara að nemandinn bregðist rétt við slíkum aðstæðum og hafi flugöryggi í fyrirrúmi.
Almenn viðmiðunarmörk eru sett í JAR-FCL. Prófdómarinn tekur tillit til ókyrrðar í loftfari og stjórnunareiginleika og afkastagetu þess loftfars sem notað er.
Nemandinn má, að fengnu leyfi prófdómara, endurtaka hvert flugbragð eða hverja aðgerð prófsins einu sinni.
Prófæfingarnar er að finna á eyðublaði fyrir verkleg próf .
Hvenær telst próf staðið?
- Ef ekki eru gerð þau mistök í prófi sem eiga að valda því að nemandinn falli (mistök sem fela í sér að öryggi sé ekki haft í fyrirrúmi).
- Ef nemandinn hefur sýnt fram á að hann hafi þekkingu og færni sem nýtist honum í raun.
- Ef nemandinn hefur sýnt góða dómgreind og að hann kunni að nýta sér þau úrræði sem hann hefur yfir að ráða.
- Ef nemandinn hefur sýnt fram á að hann geti stjórnað loftfarinu á yfirvegaðan og nákvæman hátt og innan viðurkenndra takmarka lotfarsins og í samræmi við gildandi lög og reglur.
Hvenær telst próf ekki staðið?
- Ef alvarleg mistök hafa verið gerð (öryggis ekki gætt).
- Ef vafi leikur á að aðgerð eða verklag hafi verið framkvæmt af nægjanlegu öryggi og samkvæmt gildandi lögum og reglum.
- Ef vafi leikur á þegar litið er á heildarútkomu í prófi að nemandinn hafi nauðsynlega hæfileika til að gera áætlun og framkvæma flug á öruggan hátt með tilliti til þeirra réttinda sem sótt er um.
- Ef nemandinn fellur á prófinu getur hann, ef hann óskar eftir því, fengið annan prófdómara í endurtökuprófið.
Eru til einhver góð ráð handa flugnema í flugprófi?
- Spurðu ef þú ert í vafa varðandi verkefnið.
- Svaraðu eins vel og þú getur á þinn hátt.
- Segðu við sjálfan þig að þú hafir margsýnt að þú kunnir það sem þú átt nú að gera.
- Vertu ekki að velta þér upp úr því sem þér mistókst að gera, einbeittu þér að því sem þú ert að gera.
- Hvað sem skeður, þá gleymdu ekki að stjórna loftfarinu.
- Ef þú treystir þér ekki til að halda áfram segðu þá prófdómaranum að þú viljir hætta við og hvað þú hafir hugsað þér að gera.
- Nýttu þér öll þau úrræði sem þú hefur (þín, annarra, loftfarsins o.s.frv.).
- Ekki afsaka mistök – lærðu af þeim.
Hvernig framlengi ég áritanir sem eru í gildi?
Til að framlengja áritanir sem eru í gildi er farið í hæfnipróf. Til að komast í færnipróf eða hæfnipróf fyrir flokksáritun á einstjórnarflugvélar geta handhafar áritunarinnar sem er í skírteininu haft beint samband við prófdómara og samið um tíma fyrir próf..
Hve lengi gildir flokksáritun á einshreyfils einstjórnarflugvél?
Flokksáritun á einhreyfils einstjórnarflugvél gildir í tvö ár. Til að framlengja þá áritun áður en hún fellur úr gildi getur handhafi farið í hæfnipróf allt að þremur mánuðum áður en hún fellur úr gildi eða sleppt því ef hann hefur flogið minnst 12 tíma á seinni 12 mánuðum gildistíma áritunarinnar, þar af 6 tíma sem flugstjóri, framkvæmt 12 flugtök og lendingar og farið í einnar klukkustunda æfingaflug með kennara. Í stað þess flugs getur komið hvaða hæfni-/færnipróf sem er á loftfar. Til að endurnýja áritunina ef hún er fallin úr gildi þarf að fara í færnipróf hjá prófdómara.
Hve lengi gildir flokksáritun á fjölhreyfla einstjórnarvél?
Flokksáritun á fjölhreyfla einstjórnarflugvél gildir í eitt ár. Til að framlengja þá áritun áður en hún fellur úr gildi getur handhafi farið í hæfnipróf allt að þremur mánuðum áður en hún fellur úr gildi og þarf að hafa farið minnst í 10 flug á viðkomandi flokk eða tegund eða í eitt flug með prófdómara í viðkomandi flokki eða tegund eða í flughermi. Ef endurnýja á áritun sem er fallin úr gildi þarf að fara í hæfnipróf og uppfylla allar kröfur um upprifjun og þjálfun sem Flugmálastjórn ákveður.
Hve lengi gildir blindflugsáritun?
Blindflugsáritun gildir í eitt ár og er hæfnipróf tekið um leið og færni-/hæfnipróf fyrir flokks- eða tegundaráritun.