Að hefja flugnám í einu aðildarríki JAA og ljúka því í öðru ríki.

Reglugerð um skírteini kveður á um að allt flugnám til  útgáfu skírteinis skuli fara fram í sama ríki sem verður útgáfuríki skírteinisins.  JAR-FCL 1.065 a)
Þó má skv. JAR-FCL 1.065 b), ef samkomulag beggja ríkja liggur fyrir, flytja sig í miðju námi milli tveggja aðildarríkja JAA.  Þá þarf að ljúka bæði bóklegu námi og bóklegum prófum í einu aðildarríki JAA og sækja um til annars ríkis  að fá að ljúka allri þjálfum og færniprófi þar.  Samkomulag þarf að vera um hvort ríkið verður útgáfuríki skírteinisins. Yfirleitt er það ríkið þar sem verklegu námi og prófi lýkur.  Hér er gerð krafa um það ef Ísland á að verða útgáfuríki skírteinisins.  Samkomulag um þessa tilhögun náms er fyrir hendi milli bresku (UK CAA)  og íslensku flugmálastjórnanna en þó þarf að meta hvert tilvik og   óska þarf eftir samkomulagi  milli annarra flugmálastjórna í hverju tilfelli fyrir sig.

Hafi einstaklingur lokið bóklegu námi og prófum í öðru ríki og óskar eftir að ljúka flugþjálfun og verklegu flugprófi á Íslandi til útgáfu skírteinis þarf að senda skírteinadeild beiðni um undanþágu frá kröfum JAR-FCL 1.065 (a) ásamt upplýsingum um hvenær og hvar bóklegu námi og prófum var lokið.  Hægt er að sækja um undanþágu með tölvupósti: fcl@caa.is  Tilskylt heilbrigðisvottorð má fá í hvoru ríkinu sem er en sækja þarf um flutning vottorðs til útgáfuríkis á til þess gerðu eyðublaði  áður en skírteinið er gefið út. Gjald fyrir þessa afgreiðslu er kr. 9.040 sem felur í sér staðfestingu á gögnum þ.m.t. varðandi heilbrigði.

Þjálfun og próf fyrir áritanir (flokks- og tegundaráritanir eða kennara- og blindflugsáritanir) í skírteini er hægt að fá í samþykktum skólum í hvaða aðildarríki JAA sem er.
Seinna er unnt að flytja skírteinið til annars aðildarríkis JAA ef umsækjandi er búsettur þar a.m.k 185 daga á ári eða er starfsmaður flugrekanda þess ríkis.


Sjá Reglugerð um skírteini flugliða á þyrlu nr. 402/2008, Reglugerð um skírteini flugliða á flugvél nr. 401/2008, sbr. 600/2009 grein JAR-FCL 1.065/2.065 (d).