Aukin JAR-FCL réttindi

Til þess að fá aukin réttindi með nýjum áritunum í skírteini skal handhafi ljúka námi fyrir viðkomandi áritun í samþykktum eða skráðum flugskóla eða tegundarskóla í einhverju aðildarríki JAA (Sjá JAR-FCL 1.065/2.065(b)).

    Samþykktur flugskóli og tegundarskóli
  • skal hafa fengið vottorð um samþykki frá Flugmálastjórn fyrir viðkomandi kennslu og í samræmi við kröfur JAR-FCL.

    Skráður skóli
  • skal einnig verið samþykktur af Flugmálastjórn samkvæmt sérstakri íslenskri reglugerð, Reglugerð um flugskóla.

    Gögn fyrir skráningu áritunar í skírteini
    Aðeins íslenska Flugmálastjórnin getur skráð áritanir í íslensk skírteini. Til þess að fá nýja áritun í skírteini þurfa frumgögn að berast skírteinadeild flugöryggissviðs Flugmálastjórnar varðandi;
  • bóklega kennslu og bókleg próf
  • flugkennslu og færnipróf (verkleg próf)
  • sérstaka flugþjálfun ef það á við.

Í gögnum skal greinilega koma fram að um sé að ræða skóla, kennara og prófdómara sem hafa hlotið samþykki flugmálstjórnar í viðkomandi ríki.