Áritanir í JAR-FCL skírteini
Allar áritanir í skírteini skulu skráðar hjá flugmálastjórn útgáfuríkis skírteinisins.
Tegundar- og flokksáritanir
- Öll kennsla fyrir flokk eða tegund loftfara skal vera í samræmi við samþykkta þjálfunarhandbók skólans og próf fara fram á vegum Flugmálastjórnar.
- Áritun á nýtt afbrigði tegundar. Ef handhafi áritunar á loftfarstegund óskar eftir því að fá áritun á nýtt afbrigði tegundarinnar skal hann ljúka mismunarþjálfun eða kynningarþjálfun.
- Mismunarþjálfun (Difference Training). Mismunarþjálfun þarf þegar frekari þjálfun og þekking varðandi viðkomandi tegundarafbrigði er nauðsynleg. Þjálfunina skulu flokkskennarar CRI, tegundarkennarar TRI, flugþjálfakennarar SFI eða flugkennarar FI framkvæma og staðfesta í flugdagbók umsækjandans.
- Kynningarþjálfun (Familiarisation Training). Þarf þegar nauðsynlegt er að vita eitthvað meira um nýja afbrigðið.
- Gildistími mismunarþjálfunar. Ef handhafi tegundaráritunar hefur ekki flogið viðkomandi tegundarafbrigði í tvö ár er krafist viðbótarþjálfunar eða hæfniprófs. Þetta á þó ekki við fyrir flokksáritanir á einshreyfilsflugvélar með bulluhreyfli.(sjá JAR-FCL 1.235(c) og 2.235(c)).
Blindflugsáritun.
- Ekki má fljúga blindflug nema handhafi skírteinis hafi blindflugsáritun í gildi á viðkomandi gerð loftfars í samræmi við kröfur JAR-FCL.
- Öll kennsla fyrir blindflugsáritun skal vera í samræmi við samþykkta þjálfunarhandbók samþykkts skóla og próf fara fram á vegum viðkomandi flugmálastjórnar.
- Blindflugsáritun á fjölhreyfla loftfar. Handhafi áritunar hefur heimild til að fljúga blindflug í eins- og fjölhreyfla loftfari í minnst 200 feta (60m) ákvörðunarhæð.
- Blindflugsáritun á einshreyfilsloftfar, Handhafi áritunar hefur heimild til að fljúga blindflug í einshreyfilsloftfari í minnst 200 feta (60m) ákvörðunarhæð.
Næturflugsáritun
- Nám fyrir næturflugsáritun skal fara fram í samþykktum eða skráðum flugskóla og samkvæmt samþykktri námskrá. Að námi loknu skal viðkomandi skóli veita Flugmálstjórn skriflega staðfestingu á því að námið hafi verið fullnægjandi.
- Áritunin er síðan í gildi meðan skírteinið og minnst ein flokksáritun er í gildi.
Þjálfun í ríki sem ekki á aðild að JAA
- Þegar flugmaður starfar erlendis í landi sem ekki á aðild að JAA þarf hann stundum á fá tegundar- eða flokksáritun sem hann hefur verið þjálfaður og prófaður fyrir í því landi. Tekið er á þessu í eftirfarandi JAR-FCL greinum í reglugerð: JAR-FCL 1.250 fyrir fjölstjórnarflugvélar, 1.255 fyrir einstjórnarflugvélar, 2.250 fyrir fjölstjórnarþyrlur og 2.255 fyrir einstjórnarþyrlur.
- Umsækjandi þarf að koma eftirfarandi gögnum til skírteindeildar: Þjálfunar- og prófagögnum, staðfestingu frá viðkomandi yfirvöldum um að þjálfunar- og prófakröfur viðkomandi ríkis séu uppfylltar.
- Slík áritun er takmörkuð við loftför sem skráð eru af viðkomandi ríki sem ekki á aðild að JAA eða loftför sem rekin eru af flugrekanda í því landi.
- Takmörkunina má afnema þegar flugmaðurinn hefur áunnið sér minnst 500 fartíma á viðkomandi flokk- eða tegund og uppfyllir kröfur JAA varðandi hæfnipróf fyrir framlengingu og endurnýjun áritunar (Sjá JAR-FCL 1.240 og 2.240).