Þegar Ísland gerðist aðildarríki JAA fylgdi því sú skylda að innleiða samevrópskar kröfur varðandi skírteini flugliða, JAR.
Markmiðið með þessu var að stuðla að flugöryggi og að gera flugliðum kleift að flytja sig milli starfa í loftförum skráðum í öllum aðildarríkjum JAA.
Til þess að öðlast full réttindi aðildarríkis JAA þarf skírteindeild viðkomandi ríkis að hafa staðist skoðun sérstaks úttektarhóps JAA og fengið vottorð um gagnkvæma viðurkenningu “letter of mutual recognation” .
JAR-FCL skírteini eru gefin út í samræmi við ICAO staðla og JAR-FCL. Þessi skírteini eiga að gilda án formsatriða til að stjórna loftförum skráðum í öllum aðildarríkjum JAA.
Heimildir sem handhöfum skírteina veitast felast í áritunum varðandi loftför og öðrum skráningum í skírteinum, t.d. næturflugsáritunum, blindflugsáritunum, flugkennaraáritunum o.fl.