Flugmálastjórn ber ábyrgð á útgáfu flugstarfaskírteina, samþykkir nám varðandi þau og hefur eftirlit með flugskólum, tegundarskólum og þjálfun hjá flugfélögum.

Öll flugstarfaskírteini gefin út á Íslandi eru í samræmi við staðla Alþjóðaflugmálastofn¬un¬arinnar, viðauka 1 (ICAO Annex 1).  Skírteini flugmanna á flugvélar og þyrlur  eru einnig í samræmi við kröfur  flugöryggissamtaka Evrópu um skírteini flugliða (JAR-FCL). Skírteini flugumferðarstjóra og flugvéltækna eru  gefin út í samræmi við staðla  ICAO Annex 1 og skírteini flugumferðarstjóra einnig  samkvæmt tilskipun 2006/23/EC og skírteini flugvéltækna samkvæmt tilskipun 2042/2003 og Part 66.