Kröfur til tegundaráritunar loftfars í Part 66 skírteini

Þeir sem ætla að sækja um tegundaráritun í Part 66 skírteini þurfa frá 1. apríl 2010 að sækja um samþykki á verklegum þætti námsins til Flugmálastjórnar Íslands áður en námið hefst.

Kröfur sem gerðar eru til tegundaráritunar eru að finna í viðauka III (66. hluti) í fylgiskjali I við reglugerð nr. 206/2007 um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði. Þessar kröfur eru einnig að finna á heimasíðu Flugöryggisstofnunar Evrópu þ.e. European Aviation Safety Agency (EASA). Flugmálastjórn Íslands vill benda á að nauðsynlegt er að lesa „acceptable means of compliance (AMC)” og “guidance material (GM)“ samhliða „implementing rules“ til að ná góðum skilning á þeim kröfum sem eru gerðar til tegundaráritunar í Part 66 skírteini.

Athygli er vakin á því að hér er eingöngu verið að fjalla um flugvélar og þyrlur þar sem tegundar námskeið er krafa áður en flugvirki getur sótt um áritun fyrir viðkomandi flugvél í Part 66 skírteini sitt, flugvélar eins og t.d. Boeing, Airbus, Dash, Eurocopter SA332 og Cessna 500 en ekki litlar einkavélar.

Námið
Til að flugvirki geti öðlast B1 og/eða B2 tegundarréttindi á flugvél eða þyrlu þarf að klára tvennt, bóklegt nám og verklegt nám. Ef sótt er um C áritun nægir að ljúka eingöngu bóklegu námi ef umsækjandinn hefur þegar C grunnáritun í Part 66 skírteini sínu.

    Bóklegur hluti:
  • Bóklegt nám þarf að vera framkvæmt af viðurkenndu EASA Part 147 viðhaldskennslufyrirtæki (Part 147 skóla). Nemandinn þarf að standast próf sem lögð eru fyrir hann á námskeiðinu og í lok námskeiðsins fær nemandinn staðfestingarvottorð um að hann hafi staðist námið. Athygli er vakin á því að ekki nægir að skólinn sé Part 147 samþykktur heldur þarf námskeiðið sjálft einnig að vera EASA Part 147 samþykkt og er flugvirkjum bent á að fullvissa sig um að svo sé áður en námið hefst. Einnig er flugvirkjum bent á að fullvissa sig um að á staðfestingarvottorði námskeiðsins komi fram allar upplýsingar um námskeiðið s.s. flugvélategund, tegund hreyfla, flokkur B1, B2, eða C og að námskeiðið sé EASA Part 147 samþykkt o.s.frv.
  • Flugmálastjórn Íslands hefur takmarkaða heimild samkvæmt reglum að samþykkja bóklegt tegundarnámskeið sem ekki hefur hlotið EASA Part 147 samþykki. En slík samþykkt þarf að liggja fyrir áður en námskeiðið hefst. Tilgangur með þessari heimild er að gera yfirvöldum kleift að samþykka námskeið undir sérstökum kringumstæðum, t.d. í tilfellum þegar ekkert samþykkt Part 147 námskeið er til. Sömu kröfur gilda að öðru leiti um þessi námskeið.

    Verklegur hluti:
  • Ljúka þarf verklegu námi sem tengist bóklega náminu. Verklegt nám er hluti af tegundarnámskeiðinu og jafn mikilvægt bóklega hlutanum. Í lok verklegs náms þarf staðfestingu um að því sé lokið. Verklegt nám verður að fela í sér framkvæmd dæmigerðra viðhaldsverkefna og mat á þeim til að ná eftirfarandi markmiðum
  • a) Nemandi skal geta tryggt örugga framkvæmd viðhalds, skoðana og venjubundinnar vinnu í samræmi við viðhaldshandbókina (maintenance manual) og aðrar viðeigandi leiðbeiningar og verkefni sem eiga við um viðkomandi loftfarstegund, t.d. bilanaleit, viðgerðir, lagfæringar, útskipti, stillingar og virkniprófanir eins og að láta hreyfil ganga o.s.frv. ef þörf krefur.
  • b) Nemandi skal geta notað rétt öll tæknirit og tækniskjöl varðandi loftfarið.
  • c) Nemandi skal geta notað rétt sérhæfð/sérstök verkfæri og prófunarbúnað, taka úr og skipta út íhlutum og einingum sem einskorðast við viðkomandi tegund, þ.m.t. viðhaldsaðgerðir á vængjum.

    Boðið er upp á þrjár leiðir til að sýna fram á að verklegu námi sé lokið:
  • EASA Part 147 skóli ákveður hvenær nemandi hefur sýnt fram á þekkingu og hæfni á þessu sviði og gefur út staðfestingarvottorð því til staðfestingar. En til þess að skólinn geti gefið út slíkt staðfestingarvottorð þarf skólinn að vera samþykktur af EASA fyrir verklega hlutanum og þar með hafa aðstöðu og aðbúnað til að geta framkvæmt verklegan hluta námsins.
  • EASA Part 145 viðhaldsfyrirtæki hefur verklega hlutann á sinni eigin ábyrgð. Part 145 viðhaldsfyrirtæki leggur til Flugmálastjórnar Íslands nákvæma kennsluáætlun um lengd verklegs náms, hvernig það tengist bóklega náminu og hvernig fyrirtækið ætlar að uppfylla þær kröfur sem eru gerðar til verklegs náms sem nefndar eru hér að ofan. Viðhaldsfyrirtækið tilnefnir matsmann (assessor) fyrir nemandann og þarf Flugmálastjórn Íslands að fá staðfestingu frá gæðadeild viðhaldsfyrirtækisins hver matsmaðurinn er áður en námið hefst. Í lok verklegs náms staðfestir matsmaður kunnáttu nemandans til Flugmálastjórnar Íslands. Einnig þarf viðhaldsfyrirtækið að halda eftir gögnum sem sanna að viðkomandi einstaklingur hafi uppfyllt kröfurnar sem eru gerðar til hans í kennsluáætluninni.
  • EASA Part 145 viðhaldsfyrirtæki býr til OJT (On the job training program) áætlun með fyrirfram ákveðnum verkum (tasks) sem nemandinn á að framkvæma. Part 145 viðhaldsfyrirtæki lætur nemandann fá þessa áætlun sem hann þarf svo að uppfylla. Viðhaldsfyrirtækið tilnefnir umsjónamann eða -menn sem leiðbeina nemandanum. þegar nemandinn leysir verkin kvittar umsjónamaður fyrir hverju verki til staðfestingar að því sé lokið. Einnig tilnefnir viðhaldsfyrirtækið matsmann (assessor) fyrir nemandann og þarf Flugmálastjórn Íslands að fá staðfestingu frá gæðadeild viðhaldsfyrirtækisins hver matsmaðurinn er áður en námið hefst. Í lok verklegs náms staðfestir matsmaður kunnáttu nemanda til Flugmálastjórnar Íslands.
    Eins og í lið b) þá þarf OJT að uppfylla þær kröfur sem eru gerðar til verklegs náms hér að ofan og um leið að tengjast og styðja við bóklega námið.


Eins og kemur fram í textanum hér að ofan þá er eina leiðin til að framkvæma verklega hluta tegundarnáms að það sé framkvæmt undir ábyrgð Part 147 skóla eða Part 145 viðhaldsfyrirtækis.

Hvaða leið (a, b eða c) er valin til að ljúka verklega náminu er að sjálfsögðu undir hverjum og einum komið. Flugvirkinn verður þó að fullvissa sig um að Flugmálastjórn Íslands samþykki það verklega nám sem hann tekur. Því annars gæti flugvirkinn lent í því að fá höfnun á verklegu námi frá Flugmálastjórn Íslands þegar sótt er um tegundaráritun í Part 66 skírteinið.

    Samþykki á verklegu námi
  • Til að draga úr líkum á því að vandamál skapist þegar sótt er um tegundaráritun í Part 66 skírteini þarf að sækja um samþykki á verklagu námi til Flugmálastjórnar Íslands áður en námið hefst. Hefur Flugmálastjórnar Íslands þess vegna útbúið sérstakt umsóknareyðublað fyrir verklega hluta námsins. Eyðublaðið heitir „APPLICATION FOR APPROVAL OF PRACTICAL ELEMENT TYPE TRAINING COURSE„ og er númer LHD-402.  Þegar umsækjandi hefur fyllt út umsóknareyðublaðið ásamt því að leggja inn þau stoðgögn sem með skulu fylgja og fram koma á eyðublaðinu mun Flugmálastjórn Íslands yfirfara umsóknina og í framhaldi af því samþykkja eða hafna verklegu námi.
    Umsóknum sem eru samþykktar eru gefnar sérstakt bréf því til staðfestinga.

    Kostnaður:
  • Flugmálastjórn Íslands tekur fast gjald 9040,- kr. fyrir að gefa út samþykki á verklega hluta námsins (OJT). Gjaldtökunni er mjög stillt í hóf og miðast við að umsóknin ásamt öllum þeim fylgigögnum sem henni ber að fylgja sé vel útfærð áður en umsóknin eru lögð inn til samþykkis hjá Flugmálastjórn.
    Ef um veruleg frávik er að finna á umsókninni verður henni hafnað með skýringum.  Þá er gerður fyrirvari um frekari gjaldtöku samkvæmt tímagjaldi ef vinna á yfirferð umsóknarinnar tefst vegna endurtekinna ófullnægjandi viðbragða eða upplýsinga umsækjanda

Allar fyrirspurnir um skírteini flugvirkja skulu sendar á netfangið part66@caa.is