Nám í flugvéltækni og skírteini flugvéltæknis
1. Almennt
Til að fá leyfi til að annast viðhaldsvottun loftfara er nauðsynlegt að hafa skírteini flugvéltæknis, svokallað Part 66 skírteini. Til að öðlast slíkt skírteini þurfa umsækjendur að uppfylla kröfur sem tilgreindar eru í reglugerð um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði, nr. 206/2007 með síðari breytingum. Um er að ræða samevrópskar reglur og njóta skírteini flugvéltækna gagnkvæmrar viðurkenningar á grundvelli EES-samningsins. Með tilvísun í ,,hluta‘‘, t.d. hluta 145 er átt við tiltekin hluta í reglugerð nr. 206/2007.
2. Réttindaflokkar
Skírteinum flugvéltækna er skipt niður í ákveðna flokka og eftir atvikum undirflokka eftir því hvaða réttindi skírteinishafi hefur.
Skírteini flugvéltæknis í flokki A:
- Skírteinið veitir skírteinishafa leyfi til að gefa út afhendingarvottorð (viðhaldsvottorð) að loknu minni háttar reglubundnu leiðarviðhaldi og einfaldri lagfæringu á bilun innan ramma þeirra verkefna sem eru sérstaklega árituð í heimildinni. Vottunarréttindi skulu vera bundin við þau verk sem skírteinishafi hefur sjálfur innt af hendi í samþykktu 145 hluta (Part-145) viðhaldsfyrirtæki.
Flugmálastjórn Íslands hefur ekki gefið út skírteini flugvéltækna í A flokki og engir flugvéltæknar með skírteini í flokki A eru starfandi á Íslandi.
Skírteini flugvéltæknis í flokki B1:
- Skírteinið veitir handhafa leyfi til að gefa út afhendingarvottorð (viðhaldsvottorð) að loknu viðhaldi, þ.m.t. á burðarvirki loftfars, fullbúnum hreyflum og vélvirkum kerfum og rafkerfum. Útskipti á rafeindatækjum, sem hægt er að skipta út í leiðarviðhaldi og kalla á einfaldar prófanir til að kanna nothæfi þeirra, skulu einnig falla undir þessi réttindi.
Skírteini flugvéltæknis í flokki B2:
- Skírteinið veitir handhafa leyfi til að gefa út afhendingarvottorð (viðhaldsvottorð) að loknu viðhaldi á rafeindabúnaði loftfara og rafkerfum.
Skírteini flugvéltæknis í flokki C:
- Skírteinið veitir handhafa leyfi til að gefa út afhendingarvottorð (viðhaldsvottorð) að loknu aðalviðhaldi loftfars. Réttindin gilda um loftfarið í heild sinni í samþykktu viðhaldsfyrirtæki sem hlotið hefur samþykki skv. 145 hluta (Part-145).
Undirflokkar
- Flokkum A og B1 er skipt niður í undirflokka eftir gerð loftfars (flugvél/þyrlu) og hreyfiltegund (strokk-/hverfilhreyflar)/(piston/turbine). Viðkomandi undirflokkur A1 fellur sjálfkrafa undir B1.
3. Kröfur um grunnþekkingu og reynslu
Skilyrðum sem umsækjendur þurfa að uppfylla til að fá skírteini flugvéltæknis er hægt að skipta í tvennt. Annars vegar þurfa umsækjendur að uppfylla tilteknar kröfur um grunnþekkingu og hins vegar kröfur um verklega reynslu. Kröfurnar eru skilgreindar fyrir hvern flokk fyrir sig.
Til að uppfylla kröfur um grunnþekkingu þurfa umsækjendur að sýna fram á kunnáttu sína með prófi í viðeigandi námsfögum. Þessi próf geta annaðhvort verið haldin af viðurkenndu kennslufyrirtæki eða lögbæru yfirvaldi innan EES. Ekkert viðurkennt kennslufyrirtæki er á Íslandi né býður Flugmálastjórn Íslands upp á þessi próf. Til viðbótar við kröfur um grunnþekkingu þurfa umsækjendur að uppfylla reynslukröfur og eru þær mismiklar eftir því hvernig umsækjandi hefur hagað þjálfun sinni.
Frekari þjálfunar er svo þörf til að fá vottunarréttindi á tiltekna tegund loftfara.
Mismunandi leiðir
Hægt er að fullnægja kröfum um grunnþekkingu og reynslu á mismunandi hátt og er þar að meginstefnu um þrjá valkosti að ræða:
- A. Samþykkt grunnþjálfunarnámskeið + reynsla (Samþykkt grunnþjálfunarnámskeið samanstendur af bóklegri kennslu, próftöku auk verklegrar þjálfunar)
- B. Önnur viðeigandi þjálfun að mati Flugmálastjórnar Íslands auk prófs í grunnþekkingu + reynsla (Önnur viðeigandi þjálfun gæti t.d. talist nám í flugvéltækni frá ríki utan EES)
- C. Próf í grunnþekkingu + reynsla
Hér að neðan má sjá einfaldaða myndræna lýsingu á því hvernig hægt er að uppfylla kröfurnar fyrir flokk B1:

Undanfarin ár hafa flestir íslenskir nemar í flugvéltækni sótt til norðurlanda, einkum Danmerkur og í því tilviki á við sú leið sem tilgreind er lengst til vinstri, þ.e. samþykkt námskeið auk ráðstafana vegna verklegrar þjálfunar.
4. Staðan á Íslandi í dag
Nám í flugvéltækni hefur ekki verið í boði á Íslandi um árabil. Umsækjendur um skírteini flugvéltæknis á undanförnum árum hafa því almennt lokið námi sínu erlendis. Sumir umsækjendur hafa fullnægt bæði kröfum um grunnþekkingu og reynslu erlendis en aðrir hafa farið þá leið að fullnægja reynslukröfum hjá viðurkenndum íslenskum viðhaldsaðilum.
Flugskóli íslands mun í vetur halda samþykkt grunnþjálfunarnámskeið í flugvéltækni í samvinnu við Lufthansa Resource Technical Training. Í því tilviki er um að ræða kennslufyrirtæki sem hlotið hefur viðurkenningu breskra flugmálayfirvalda til að halda samþykkt grunnþjálfunarnámskeið og próf í grunnþekkingu fyrir útgáfu skírteini flugvéltæknis. Eftir að hafa lokið slíku námi getur nemandi sótt um að komast að hjá viðhaldsfyrirtæki sem samþykkt er skv. hluta 145 (Part-145). Að loknum reynslutíma er hægt að sækja um skírteini flugvéltæknis hjá Flugmálastjórn Íslands eða flugmálayfirvöldum í öðru EES ríki. Til að fá slíkt skírteini þarf umsækjandi þarf að sýna fram á að hann hafi unnið við það sem teljast má dæmigerður þverskurður af viðhaldsverkefnum við loftför.
Hvaða leið sem verður fyrir valinu er afar mikilvægt er að þeir sem hyggja á nám í flugvéltækni gerir sér grein fyrir öllum þeim kröfum sem þarf að uppfylla áður en unnt er að gefa út skírteini. Þetta gildir bæði um bóklegt nám og verklega reynslu. Í þessu tilliti er rétt að vekja athygli á því að umsækjendur um skírteini flugvéltæknis verða að hafa uppfyllt skilyrði um reynslu á síðustu sjö árum fyrir umsókn og að próf í grunnþekkingu fyrir hvern flokk eða undriflokk skírteinis gilda í fimm ár.